föstudagur

ég ætla að taka eitt fram í tilefni þess að ég er ekki í góðu skapi í dag. þeir sem hlustuðu á þórarinn hugleik dagsson í útvarpinu í morgun hjá tvíhöfða hafa kannski heyrt þegar að hann sagði að myndin master and commander væri klámmynd. þetta er brandari úr minni smiðju sem var ekki tekið fram þarna í morgun. ég sagði hann þegar þórarinn og þrándur nokkur voru að fara á þessa mynd því mér fannst titillinn master and commander helst til klámmyndalegur. annars er ég bara upp með mér að mínir brandarar, hversu fyndnir sem þeir eru skuli vera notaðir í útvarpinu. en rétt skal vera rétt! annars er lítið í fréttum. horfði bara á amelie í gær og var með ástarsöknuð. góða helgi kæru vinir. see ya!
fuck me

Engin ummæli: