laugardagur

jæja!
mamma kom í kaffi og spjall í morgun með bakkelsi. við mæðgur fórum svo í rúmfatalagerinn og ikea. ég græddi heilmikið á þessari ferð okkar, gaman að vera litla barnið. ég fékk tvö ný lök á rúmið, enda ekki seinna vænna þar sem að þau lök sem að ég á fyrir eru meira farin að líkjast neti en lökum. ég fékk dásamleg rúmföt úr flóneli með bleikum blómum og þrjú pör af bleikum sokkum. ég fékk handklæði og myndaramma fyrir katta tarotspilin mín sem að mig er lengi búið að langa til að ramma inn af því að þau eru svo falleg. á morgun ætlum við mamma svo að fara og kaupa handa mér náttslopp. ég fékk líka kippu af bjór af því að ég er að fara til dóru í kvöld og ég ætla að verða tipsí! ahhhh... lífið er "sweet".

Engin ummæli: