föstudagur

læknirinn minn kenndi mér í gær próflestraraðferð sem á að vera voða sniðug og nefnist hún 20-5. hana iðka ég nú og ét banana eins og vitleysingur þó mér finnist öllu jöfnu allt með bananabragði gott nema bananarnir sjálfir. ef ég gæti komið orðum að tilhlökkun minni eftir því að klára prófin hér á síðunni myndi veraldarvefurinn hrynja eins og hann leggur sig, svo "gígantísk" er sú tilhlökkun. elskiði mig nú... lámarkskrafa þar sem að ég gef ykkur hispurslausa og einlæga innsýn inní mitt einkalíf á næstum hverjum degi.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég elska þig. never doupt it. þín beta.

Tinna Kirsuber sagði...

Demitt! Maður getur ekki verið fúll útí svona... En ég spyr samt, hvar varstu þá seinasta sunnudag á milli kl. 13 - 17 vinan?