föstudagur

ég er í móki sem hverfur ekki heldur umhverfist um mig, kemst ekki úr því... skrýtið hvernig maður hugsar öðruvísi í móki, aðrar hugmyndir og nýjar, ítarlegra uplýsingaflæði og þankagangur. í mókinu hef ég legið uppí rúmi og gluggað í annarra manna og kvenna blogg, það gefur mér ekkert ólíkt öðrum sem ég hef rætt þessi mál við. mér sýnist sem ég sé að hnýsast í einkalíf annars fólks og ég kann ekki við það, engan veginn. nægt er volæðið hjá vinum, vandamönnum og mér án þess að ég fari að bæta á það með einhverri þyrstri forvitni... ég gæti þess vegna svifið núna.

Engin ummæli: