sunnudagur

ef að dagur b. vill að fólk kjósi sig, og ég kýs hann ætti hann kannski ekki að vera framan á forsíðu fréttablaðsins með hornauglýsingu þar sem hann lítur út eins og geðsjúkur fjöldamorðingi með skapgerðarbresti. mér finnst hann samt alveg fínn gaur...

12 ummæli:

kvoldmatur sagði...

Ertu búin að kjósa?
Þura

Tinna Kirsuber sagði...

Nei, geri það í dag.

Ágúst Borgþór sagði...

Villi malar hann í vor.

Tinna Kirsuber sagði...

ÞEGIÐU ÁGÚST! Ég ber þig ef þú segir svona aftur hér, haltu þínum hægri-sinnuðu órum annars staðar!

Nafnlaus sagði...

Fólk sem lætur sér detta í hug að kjósa rykfalla hárkollukarlinn Vilhjálm ætti ekki að fá að ganga laus.

Ágúst Borgþór sagði...

Þetta er eitt af þessum augnablikum þegar rennur upp fyrir manni hvers vegna vinstri sinna fólk á svona fína samleið með brjáluðum múslímum.

Tinna Kirsuber sagði...

Þú verður bara að eiga það við þig Ágúst en ég tel mig persónulega ekki eiga neitt sameiginlegt með múslimum, fjarri því! Og að setja vinstri sinnaða og múslima undir sama hatt ber ekki vott um neitt annað en fávisku og ruddaskap.

Ágúst Borgþór sagði...

Þú opnar á pólitíska umræðu á bloggsíðunni þinni og svarar hægri sinnuðum kommentum svona:

ÞEGIÐU ÁGÚST! Ég ber þig ef þú segir svona aftur hér, haltu þínum hægri-sinnuðu órum annars staðar!

En þetta svar er allt í senn ofstækisfullt, ruddalegt og barnalegt.

Tinna Kirsuber sagði...

Merkilegt hvað þú virkilega reynir að fá fólk uppá móti þér suma daga. Ég var ekkert að opna fyrir neina pólitíska umræðu, ég var einfaldlega að tjá mig um útlitið á Degi í þessari auglýsingu þarna. Og að líkja einhverjum við múslima er langt um verra en allt sem ég skrifaði.

Ágúst Borgþór sagði...

Óskapleg blinda er þetta á eigin orð og framkoma. Maður bara gapir.
Látum samt kyrrt liggja. Ég tjái mig ekki meira um þetta og bið fyrir kveðjur.

Tinna Kirsuber sagði...

Enn og aftur, þér gengur vel að fá fólk til að þola þig ekki. Og vinsamlegast ekki vera með eitthvert yfirlæti við mig, annars geturðu sleppt því með öllu að einhverjar skoðanir á því sem fer hér fram. Passaðu bara þín eigin orð, þú ert ekki hér til að ala mig upp.

Nafnlaus sagði...

Ég þekki bara einn múslima, en ég get staðfest að Tinna líkist honum ekki neitt, enda er hann hávaxinn, ljóshærður og dimmraddaður.

-Gunnhildur