fimmtudagur


fyrir áhuga- og umhyggjusama hefur lundin lést, þó ekki til hæstu hæða en þetta er allt að koma... en nú er ég komin með hríðir og þarf að fara að fæða eitt stykki ritgerð um the graduate. auk þess ætla ég mér að halda júróvisjón-partý um helgina, ég og örninn minn ætlum að djamma þangað til að við gubbum og ég og dóra litla ætlum að drukkna í mojito eða cosmopolitan.

8 ummæli:

Fjalsi sagði...

vei - má ég drekkja mér með ykkur í mojito?

Tinna Kirsuber sagði...

En ekki hvað?

dora wonder sagði...

jeij, þetta verður ógurlegt stuð. nú mun ég hafa upp á hinni ljúffengu uppskrift af mojitonum en ekki hafa upp á henni af internetinu eins og síðast :-) ég hlakka ógurlega til!

dora wonder sagði...

hmm, áhugavert hvað ég náði að troða orðasambandinu að hafa upp á einhverju oft inn í þessa annars stuttu setningu.

Tinna Kirsuber sagði...

HAHAHAHHA! :D

Ösp sagði...

Mig langar að drekkja mér í cosmopolitan með ykkur!

Tinna Kirsuber sagði...

Ösp ösp, koddu suður!

dora wonder sagði...

jæjaaa, nú er ég komin með uppskriftina og held galvösk í ríkið á morgun og kaupi það sem til þarf.