mánudagur

eina sígó og svo er ég farin að læra... læra í dag og vinna í kvöld... svona verða næstu tveir dagar, svo er það meira lærerí fyrir prófið næsta laugardag, drullast til að klára þessa ritgerð, örninn minn að spila á tveimur tónleikum í þessari viku, vinna meira á föstudaginn... þetta er alveg rosa! annars finnst mér gaman að vinna, það brýtur upp hversdagsleikann þó það sé pínu stressandi þegar maður er líka að læra fyrir próf og gera ritgerð en það er náttúrulega hið klassíska: money in the fucking pocket! ég hef annars ekkert frá neinu sérstaklega bitastæðu að segja í dag, þetta gengur bara eins og alltaf og ég ætla að vera full þegar ég er búin í prófunum. meira hef ég ekki ákveðið... og jú... gera "artwork" í "coverið" hjá strákunum mínum í shadow parade... platan er alveg að koma en ég þori ekki að tala um það til að "jinxa" ekki neinu... en hún er MÖGNUÐ!

Engin ummæli: