mánudagur


jæja... ítaladjöflarnir unnu. og mér fannst æði þegar zidane skallaði ítaladjöfulinn þarna í bringuna... ítalinn hefur örugglega sagt eitthvað niðrandi sem tengist endaþarmsmökum eða eitthvað ljótt um mömmu hans zidane. hann er maður að mínu skapi... maður með mitt skap... hahahahahaha!!!

maður veit hvenær maður hefur náð sér í góðan mann... það er þegar maður sendir hann útí búð eftir dömubindum þar sem að manni er ekki hugað líf sökum blóðmissis og hann kaupir rétt dömubindi. ekki barnableyjur eða sjafnaryndisbindi. það er maður til að halda í held ég...

4 ummæli:

dora wonder sagði...

einhverjir segja að ítaladjöfullinn hafi kallað Zidane hryðjuverkamann, en foreldrar hans eru innflytjendur frá Alsír og gott ef ekki múslimar, svo þetta er mjög ljótt komment. svoleiðis menn á að skalla.

Tinna Kirsuber sagði...

Ég held að hann hafi pottþétt sagt eitthvað um mömmu hans... Þeir múslimar eru víst líka voða viðkvæmir fyrir því. En hitt þykir mér samt öllu verra, að kalla hann hryðjuverkamann. Ég hefði gert það sama...

Anna Kristjánsdóttir sagði...

Það er ljótt að skalla fólk!

Tinna Kirsuber sagði...

Já já, ég er nú svosum alveg sammála því, ofbeldi leysir ekkert en ég skil hann líka.