föstudagur

alltaf að læra eitthvað nýtt... blætisdýrkun er það nýjasta og mér tókst að lesa mjög langa og akademíska grein áðan þar sem þetta orð kom fyrir u.þ.b. tíu sinnum og það var ekki fyrr en ég var búin með greinina sem ég meðal annars skildi EKKI að mér hugkvæmdist að fletta þessu orði upp. það þýðir sumsé fetishismi og er oftast notað í tengslum við kynferðislega brenglun og þ.h. ég er kannski bara hálfviti fyrir að hafa ekki vitað þetta...

annars fékk ég fallegt sms áðan sem var gott klapp á bakið. stundum fær maður svoleiðis þegar maður á síst von á því og það er ó svo gott.

Engin ummæli: