fimmtudagur

vaknaði upp í nótt í kvíðakasti. það hefur ekki gerst í doldinn tíma og var ekki skemmtilegt og entist í heila eilífð að mér fannst. var með áhyggjur af öllum fjandanum en man satt best að segja ekki alveg hverjar þessar áhyggjur voru en eitthvað af þeim tengdist peningum, auðvitað... og svo náttúrulega prófunum. svo vaknaði ég pínu "blú" í morgun og er núna með áhyggjur af asnalegum hlut. svo asnalegum að ég ætla ekki einu sinni að skrifa hvað það er...

shadow parade og hljómsveitin ÉG eru að spila á gauknum í kveld og ég verð ekki þar fyrir þá sem elska að hata mig.

Engin ummæli: