þriðjudagur

vegna færslunnar hér að neðan: mér ekki illa við fólk með valbrá né er ég með fordóma gagnvart þeim. ég fæddist sjálf með valbrá sem hefur þó í tímans rás dofnað. annað vildi ég ekki segja um þetta mál.

ég er bara að bíða... það er ágætt. ég kann því ekkert illa að bíða. hef alltaf haft einstaka biðlund þó ekki sé ég þolinmóð til að bjarga lífi mínu. ég get t.d. beðið í röðum svo tímunum skiptir án þess að fá eina einustu kipru í augun. þess vegna þarf ég ekki blóðtappalyf þegar ég er nýbúin að versla í bónus... eins og allt miðaldra plebbaliðið sem borar kerrunum í rassinn á manni.

afhverju er ekki löngu búið að slá af fegurðarsamkeppnir? þetta er það ömurlegasta sem ég veit um... ef að unnur birna er virkilega svona klár og æðisleg og gáfuð, afhverju í fjáranum er hún þá ekki að mótmæla þessum kjötsýningum?

Engin ummæli: