miðvikudagur


jæja... þá erum við hjónin komin heim og gerðum svo í gær. ekki laust við að hafa bæði verið þjökuð af ofur-þreytu þegar við vöknuðum í rútínuna í morgun en mikið var nú samt gott að sofna í eigins rúmi í gærkveldi og vakna ekki hálf blautur af raka sem iðulega umlukti okkur á bátnum góða eða í helvískum kulda sem gerði líkams-þekjandi rakann enn óbærilegri. það er alltaf gott að koma heim þó að það sé himneskt að komast burt endrum og eins... ferðasagan verður svo rakin síðar í dag eða í kvöld en nú er það lærdómurinn.

2 ummæli:

Móa sagði...

velkomin heim ég kem 15. des....hlakkaru ekki til ég hlakka geðveikt og eins gott það verði snjór...annars!

Tinna Kirsuber sagði...

15. des! Æji, þá er ég einmitt að fara til Þýskalands í mánuð... Grííííííín :D Hlakka rosa til að fá þig heim Móa mín mín, ég er einmitt búin í prófum 14. des. :*