föstudagur

ég ætti kannski að gerast málefnaleg og tjá mig mál málanna eða þetta sorglega og hræðilega DV mál... það er nú vissulega bót í máli að þessar mannleysur, þeir jónas kristjánsson (sem er ekki betur að sér en það að hann kallaði steingrím njálsson skarphéðinn í kastljós-viðtalinu) og mikael torfason séu búnir að segja störfum sínum lausum sem ritstjórar þessa skeinipappírs samfélagsins (og þetta er sko ekki í fyrsta skipti sem ég kalla DV það) sem DV er, en er það nóg? skaðinn er skeður! maður er dáinn og DV er með blóð þessa manns á höndum sínum og það er synd að það þurfi mannslát til að eitthvað sé gert í þessum sóðaskap sem hefur þrifist á síðum DV undanfarin misseri. fyrir mitt leiti mætti stöðva framleiðslu DV með öllu og mér finnst að verslanir ættu að taka sig saman og hætta að selja þennan viðbjóð og í leiðinni séð&heyrt og hér&nú.

að beita börn ofbeldi, sama í hvaða mynd það er, er ætíð ófyrirgefanlegt en þegar þetta ofbeldi er kynferðislegt á ég engin orð. það er ekkert sem getur lýst þeim viðbjóði, að hafa löngum til að skaða barn með þessum hætti, mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds. mönnum og konum sem aðhafast slíkar athafnir mætti mín vegna drepa og algjörlega birta myndir af á síðum dagblaða. en engu að síður er það mjög alvarlegt að saka manneskju um þessar gjörðir og enginn ætti að gera slíkt í hálfkæringi, nema að hafa allar staðreyndir á hreinu og sérstaklega ekki dagblöð. maður er saklaus uns sekt er sönnuð. en af því að DV er siðlaus pési sem ætti eingöngu að nota í brennur eða í botninn á kattaklósetti var ekki tekið tillit til hins mannlega rétts. svo ekki sé minnst á hugsanleg fórnarlömb þessa manns, séu frásagnir þeirra réttar. eins og að það sé ekki nægilega niðurlægjandi og ömurlegt fyrir alla aðila málsins að þurfa að ganga í gegnum allt sem fylgir því að fara til dómstóla með alvarleg mál eins og þetta, að þurfa að takast á við það sem gerst hefur án þess að helvíska DV þurfi að gera skrípaleik og slúðurmeti úr þessu.

og hvers vegna fá ekki björgólfs-feðgar að kaupa DV? loksins þegar þeim hugkvæmist að drullast til að nota milljarðana sína í þágu samfélagsins...
EKKI KAUPA DV! EKKI EINU SINNI GLUGGA Í GEGNUM ÞAÐ Á KAFFIHÚSI!

Engin ummæli: