þriðjudagur

ég þoli ekki þegar ég á að gera fimm blaðsíðna ritgerð en tekst bara að kúka útúr mér fjórum síðum. mér er lífsins ómögulegt að teygja lopann...

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það skiptir engu máli ef þessar fjórar blaðsíður eru góðar, ekki stressa þig á blaðsíðufjölda. Hef oft heyrt kennara tala um að hafa fyrirskipað tíu blaðsíður, fengið mun færri bls. hjá sumum en það hafi þó verið jafn gott og betra en tíu bls. ritgerðir. Ég skilaði einu sinni 10 bls. þegar átti að vera 15 og fékk samt góða einkunn.
Bókm.fræðingurinn

Tinna Kirsuber sagði...

Úúúúúú... Takk!

HTB sagði...

Þar sem ég er stundakennari við Háskóla Íslands get ég fullvissað þig um það að góð fjögurra síðna ritgerð er margfalt betri en "la-la" fimm síðna ritgerð. Svo má alltaf föndra við "font-size" til að ná fram fimmtu síðuna :-)

Tinna Kirsuber sagði...

Já, ég hugsaði útí þetta með "fontinn" en fyrir það fyrsta þá sendi ég ritgerðina sem viðhengi þannig að kennarinn mun strax sjá hvað ég er að reyna og svo er það líka bara prumpulegt... Hún skammar mig þá bara. Auk þess skráði ég seinustu heimildina sem brjóstvit... Smá "comic relief" sem ég vona að hún kunni að meta.

Tinna Kirsuber sagði...

Má ég spyrja hvað þú kennir uppí Háskóla htb? Bara af forvitni...

HTB sagði...

Ég er í félagsvísindadeild og kenni þar fjölmiðlafræði.