þriðjudagur

ömurlegir afmælisdagar:
fyrrverandi kærastar, kaldlyndir og sjálfhverfir hringja kvöldið fyrir afmælið þitt því þeir halda að það sé svo hugulsamt. láta svo eins og ekkert sé þegar þú ert grátandi úr þér augun á meðan á öllu símtalinu stendur, eftir að þú ert búin að kveðja, það sem eftir lifir kvölds, þangað til að þú sofnar og smá þegar þú vaknar næsta dag, afmælisdaginn. og það er ekki af því að þú elskar þá ennþá svo heitt þig langaði bara til að heyra að honum væri ekki sama!
það er óveður úti.
allt í upplausn í vinnunni og enginn vill borða kökuna sem þú bakaðir.
"vinir" sem þú ætlaðir að ræða óþægilega símtalið við fyrrverandi kærastann við, nenna ekki að hlusta á þig.
þér finnst þú vera feit.
þú ert á bullandi túr og getur ekki hætt að borða súkkulaði.
mamma þín nennir ekki að plana út að borða með þér í tilefni af kvartaldarafmælinu.
þú átt örugglega eftir að enda ein heima með subway í kvöld, grátandi með rauðvín að horfa á vídjó.
þú ert föst á sjálfsvorkunn...
afmælisóskalisti:
1. dvd spilari
2. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
3. sexandthecity, sería 4&5 á dvd
4. handryksuga
5. baðvog úr þorsteini bergmann
6. tónlist
7. expressókönnur, litla & stóra
8. sígarettur
9. allt sem til er í heiminum með emily strange
10. inniskó fyrir vinnuna

hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún tinna, hún á afmæli í dag! jibbbbíiiiiiii!!! TVENTÍFOKKÍNGFÆV!!!
afmælisóskalisti:
1. dvd spilari
2. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
3. sexandthecity, sería 4&5 á dvd
4. handryksuga
5. baðvog úr þorsteini bergmann
6. tónlist
7. expressókönnur, litla & stóra
8. sígarettur
9. allt sem til er í heiminum með emily strange
10. inniskó fyrir vinnuna

mánudagur


afmælisóskalisti:
1. dvd spilari
2. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
3. sexandthecity, sería 4&5 ? dvd
4. handryksuga
5. baðvog úr þorsteini bergmann
6. tónlist
7. expressókönnur, litla & stóra
8. sígarettur
9. allt sem til er í heiminum með emily strange
10. inniskó fyrir vinnuna
11. ástarmök

halló! glöggir lesendur, vinir og aðrir ættu að vita að á morgun rennur dagurinn upp! jú jú, ég verð tventífokkíngfæv klukkan 5:41 næstu nótt/morgunn. í gær fór ég í göngtúr til að hreinsa þynnkuna úr huganum. veðrið var skelfilegt og ég táraðist þegar ég heyrði litlar kisur skæla fyrir utan útihurðina á mannlausu húsi. sumt fólk ætti ekki að fá að eiga gæludýr en það er önnur saga. um veðrið... ég veit fyrir víst af því að móðir mín segir mér söguna af fæðingu minni á hverju einasta ári þegar ég á afmæli að veðrið þann dag 1979 var ekki gott. þá var gatið á ósonlaginu auðvitað ekki jafn stórt svo að móðir mín þurfti að vaða snjóinn upp í klof út á bílaplan í brjáluðu roki og óveðri svo að sjúkrabíllinn gæti sótt hana. og að sjálfsögðu allan þann tíma sem að það tók var ég að reyna að komast út úr henni. þegar upp á spítalann var komið stefndi í óefni því ég var föst einhversstaðar þarna í hyldýpinu sem hún mamma er. auk þess var ég eitthvað úldin því að með réttu hefði ég átt að fæðast vatnsberi 11. febrúar en ekki fiskur 9. mars. úr því að ég sat föst þurfti læknirinn að grípa til þess ráðs að skera mig út, þ.e. taka mig með keisaraskurði því ég átti ekki langt eftir í þessu ástandi né heldur móðirin. og í öllu odfboðinu, læknirinn öskrandi, mamma grátandi og ekki ég, var ég skorin út nema læknandskotinn var að drífa sig svo að hann skar gat á hausinn á mér og eftir það er ég með um þriggja sentimetra langt ör fyrir ofan vinstra eyrað. græn á litinn var ég síðan barinn á rassinn sem einu sinni var lítill og hent í hitakassa. ég og mamma hittumst síðan ekki fyrr en þremur dögum seinna og þá í raun í fyrsta skipti. ég kenni því um brösuleg samskipti okkar mæðgna í gegnum tíðina.
annars eyddi ég föstudegi í góðu yfirlæti með hulla og drakk mig fulla á laugardag. og ég fékk nýjan sófa í gær. jibbíííí. arnar&móa fengu hinn fræga flaps-sófa frá fyrrum tengdó svo að ég fékk þeirra gamla sem er ekki bara flottur heldur er hann líka svefnsófi og ég get legið þver og endilöng í honum og samt er enn pláss eftir fyrir a.m.k. einn rass.
ég hlakka svo til að eiga afmæli... see ya!
afmælisóskalisti:
1. dvd spilari
2. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
3. sexandthecity, sería 4&5 ? dvd
4. handryksuga
5. baðvog úr þorsteini bergmann
6. tónlist
7. expressókönnur, litla & stóra
8. sígarettur
9. allt sem til er í heiminum með emily strange
10. inniskó fyrir vinnuna

föstudagur

jesús minn almáttugur... ég þurfti að fá lán hjá einstæðri móður. hvernig endar þetta. ég get bara ekki beðið eftir því að komast í helgarfrí. ég er urrandi pirruð að utan og innan. helvíska fyrirtíðarspennan. ég er betur sett ein í kvöld með ostapoppi. það gladdi mig samt í gær að sjá það skemmtilega sjónvarpsefni sem hann þórarinn tjaslaði saman í vorum húsum. TVíhöfði! glöggir áhorfendur hafa kannski séð þegar kreditlistinn rann niður að þar blasti við mitt nafn. jú það var ég, þessi tinna. jibbííí! ég er fræg. annars verður helgin róleg. maður verður að vera hress þá næstu þegar afmælisfögnuðurinn verður. ég get enn ekki komist að nokkurri niðurstöðu hver sé hetjan mín. hvort er það þessi góða, hjartahlýja og sæta eða þessi föla, illskeytta og andstyggilega. í dag er það þessi andstyggilega... ég tala á morgun, þá verður mér máske runnin reiðin...
afmælisóskalisti:
1. dvd spilari
2. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
3. sexandthecity, sería 4&5 á dvd
4. handryksuga
5. baðvog úr þorsteini bergmann
6. tónlist
7. expressókönnur, litla & stóra
8. sígarettur
9. allt sem til er í heiminum með emily strange
10. inniskó fyrir vinnuna

magic
Your a Magical Angel!Out of all the angels, you are
the one most afflicted with magic. You can do
many enchantments as well as sorcery. You cant
do black magic, because even though your not so
"pure" your still an angel. A very
kind and curious one at that. Magical Angels
are always very easy-going with humans, but
intrestingly enough, like to expirement with
them with their spells.


What Kind of ANGEL are you? (For Girls only) This Quiz has amazingly Beautiful Pictures!
brought to you by Quizilla

afmælisóskalisti:
1. dvd spilari
2. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
3. sexandthecity, sería 4&5 á dvd
4. handryksuga
5. baðvog úr þorsteini bergmann
6. tónlist
7. expressókönnur, litla & stóra
8. sígarettur
9. allt sem til er í heiminum með emily strange

fimmtudagur

andskotans! eyddi allri pásunni í að gá hvort ég hefði gert kreditkortaumsóknina rétt...
í gær fór ég í göngutúr um hverfið þegar klukkan var að verða 7. þá eru ljósaskiptin sem er yndislegast tími dagsins. allt verður fallegt og mér fannst ég ekki þurfa að hafa neinar einustu áhyggjur.
ég fékk bréf frá birtu minni.
sá 4 nunnur í ljósaskiptunum.
horfði á sjálfa mig. see ya!
afmælisóskalisti:
1. dvd spilari
2. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
3. sexandthecity, sería 4&5 á dvd
4. handryksuga
5. baðvog úr þorsteini bergmann
6. tónlist
7. expressókönnur, litla & stóra
8. sígarettur
9. allt sem til er í heiminum með emily strange

í gær fór ég í mjög aumkunarverða búðarferð eftir vinnu til að finna mér eitthvert æti. ég endaði á því að kaupa mér 6 forsoðnar og vakúmpakkaðr fiskbollur á 2hundruð og eitthvað krónur. ég hugsaði með mér að ég gæti borðað 2 fiskbollur á kvöldi og þá myndi pakkinn duga í 3 daga. en þegar heim var komið var ég svo úlfhungruð eftir þessa einu helvítis bollasúpu í hádegismat að ég freistaðist til að fá mér 3 fiskbollur og rústaði þar af leiðandi öllu planinu. tekur mjög á taugarnar að rústa ákveðnu plani þegar maður er hálfur þjóðverji. reyndar gaf ég köttunum með mér en þetta voru helvíti góðar fiskbollur!
á mánudagskvöld sat ég með óráði uppi í sófa að glugga í teiknimyndasögur. skyndilega tók prumpa, elsta dóttir mín viðbragð og byrjaði að stara ákaft út í tómið og veifa loppunum. fyrst hugsaði ég með mér að hún væri núna loksins búin að tapa því eða þá að kannski hefði fyrsta fluga vorsins flögrað inn til mín. svo að ég tók einnig við að stara ákaft út í tómið. í fyrstu sá ég ekki neitt en svo varð ég rangeygð og reyndi að fókusa og viti menn! fyrir framan mig, hangandi úr loftinu var ein viðbjóðslegasta könguló sem ég hef á ævinni séð. þeir sem þekkja mig ættu að vita að ég er sjúklega mígandi hrædd við köngulær, sérstaklega þegar þær birtast upp úr þurru hangandi í loftinu um miðjan vetur. ég öskraði og stóð þannig rosa lengi úti á miðju gólfi með víðáttubrjálæði. hljóp svo inn á bað og sótti hárspreyið, greip zippo kveikjarann, hóf spreybrúsann á loft, kveikti á kveikjaranum og steikti helvítið. og hana nú!
óskalisti:
1. dvd spilari
2. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
3. sex&thecity, sería 4&5 á dvd
4. handryksuga
5. baðvog úr þorsteini bergmann
6. tónlist
7. expressókönnur, litla & stóra
8. sígarettur
9. allt sem til er í heiminum með emily strange

miðvikudagur

ola kæru vinir! eins og áður sagði var ég með heilaæxli, ég kýs að kalla það óskarsæxlið, en það er blessunarlega horfið núna og ég mætti til elskulegu og vellaunuðu vinnunnar minnar galvösk í morgun. þar var mér fagnað með hvítum dúfum og fjöldasöng starfsfélaganna. gott er að eiga góða að.
ég er að sjálfsögðu svo spennt núna og full tilhlökkunar að ekkert ský getur dregið fyrir þá sólu. ég á nefninlega afmæli næsta þriðjudag, eftir 6 daga. ég er með það sem kallast birthdaybabysindrome. og trúið mér, þið verðið minnt á þetta allt til seinasta dags. það skal ekki fara fram hjá neinum að ég, tinna damjanowitch ævarsdóttir verð 25 ára 9. mars n.k. svo að ef þið eruð lítið hrifin af birthdaybabysindrome og sjálhverfu, hættiði þá að lesa þetta blogg!
ég er líka pínu spennt yfir nýja þættinum sem byrjar á skjá 1um í kvöld. true hollywood stories. það hljómar safaríkt. en fjandinn hafi það, það er á sama tíma og ER!!! nú verð ég að gera upp á milli nýungagirninnar(eitthvað sem ég hef aldrei þjáðs af) og gömlu vinanna. hvort er það, ER eða hitt, hitt eða ER. Aaaaaaaaaaaaaahhhhhhhhhhh, mér finnst höfuðið á mér vera að springa!!!
föstudagur: byrjaði að drekka rauðvín um leið og ég kom heim úr vinnu. á tóman maga og varð þess vegna strax full. en auðvitað verður maður að fagna rosa góðu útborguninni. ég bara þarf ekki að fá útborgað í næsta mánuði þetta var svo frábært núna(þetta er kaldhæðið grín ef svo kynni að vera að vinnuveitendur mínir lesi þetta). svo kom hulli minn í heimsókn. gott að vera búin að endurheimta þann vinskap á ný. ég saknaði þín hulli, hulli skemmtilegur. sko, það er nefninlega bara þannig að ef maður hefur óvart misst samband við einhverja manneskju í smá tíma þarf maður bara að pína sig í gegnum eina eða tvær vandræðalæegar samverustundir og ef maður getur það verður allt eins og áður var og jafnvel betra. og hana nú! allavega, héngum bara yfir spjalli og tv.
laugardagur: baðaði mig og gekk til kringlunnar. allir geðveikir þar svo ég fór aftur út. borðaði cheerios og bjórhnetur. heill sé útborgun! ég drakk svo mjög siðsamlega áfengi með litla og hulla í tinnuborg uns við héldum á kaffibarinn. þorri minn kom líka þangað og við fórum í sannleikann eða kontor sem er þrátt fyrir allt mjög þroskaður leikur. ég var t.d. látinn spyrja upprennandi ljóðskáld í vorri borg hvað klukkan væri og skömmu síðar segja honum að ég hefði verið að dáðst að honum allt kvöldið. þetta er búið að vera fyndið í minningunni þangað til núna. ómægod, aulahrollur BIG TIME! seinna um kvöldið sagði svo sætur piltur mér að ég væri með lostafull augu. ég hef ekki getað slitið mig frá speglinum síðan þá af fryggð. en hvað eru lostafull augu? logar eldur inni í þeim?
sunnudagur: jukk, þunn. mjög þunn... en fór í bíó með hulla á american splendor sem er ÆÐI! fyndin og ÆÐI!
þeir sem hafa áhuga á að vita ættu að vita að ég fer í sumarfrí 28. júní og verð til 21. júlí. jibbí, sumarfrí. fullorðinslegt að fara í sumarfrí... ætli ég verði bara ekki full á austurvelli allan tímann og með ófrið í búðinni minni...
að lokum vil ég biðja ykkur öll um að sameinast með mér í mínútu þögn til heiðurs litla sem er að fara að dansa í danssýningu á laugardaginn. gangi þér vel litli, þú ert í hjörtum okkar allra! see ya!
love me
kæru vinir... ég biðst forláts en undanfarna daga hef ég þjáðst af heilaæxli. ykkur verður þetta að sjálfsögðu að fullu bætt.
love me

föstudagur

light
You're Element is Light. You are friendly, happy,
social, bubbly, and can brighten up any one's
day. You are very kind and a real people person
because you have several friends (or atleast
should). You're cheery nature makes you lovable
and your stunning looks are sweet and stand
out.


What's Your Element(girls)? (PICTURES)
brought to you by Quizilla

love me
ég ætla að taka eitt fram í tilefni þess að ég er ekki í góðu skapi í dag. þeir sem hlustuðu á þórarinn hugleik dagsson í útvarpinu í morgun hjá tvíhöfða hafa kannski heyrt þegar að hann sagði að myndin master and commander væri klámmynd. þetta er brandari úr minni smiðju sem var ekki tekið fram þarna í morgun. ég sagði hann þegar þórarinn og þrándur nokkur voru að fara á þessa mynd því mér fannst titillinn master and commander helst til klámmyndalegur. annars er ég bara upp með mér að mínir brandarar, hversu fyndnir sem þeir eru skuli vera notaðir í útvarpinu. en rétt skal vera rétt! annars er lítið í fréttum. horfði bara á amelie í gær og var með ástarsöknuð. góða helgi kæru vinir. see ya!
fuck me
andskotans helvítis andskotans fjandans ömurlegi helvítis fjárans viðbjóðslegi ógeðis dagur. helvítis andskotans djöfulsins fjandans helvítis andskotans viðbjóður...........................
kill me

fimmtudagur

halló... ég varð moviestar í gær. það kom maður til mín í vinnuna áður en ég fór og lét læknana segja mér að ég væri til allrar hamingju ekki með heilaæxli. ég hélt fyrst að hann væri handrukkari því ég hef áður lent í útistöðum við þá eftir að ég gleymdi að skila spólu í 2 ár en hann var tökumaður með kameru. og fyrstu 2 atriðin sem ég leik í voru tekin upp. ég þurfti ekki að fækka fötum. ég gerði síðan ekkert í gær nema gráta úr mér augun yfir oprah þætti um suður afríku og hryllinginn þar og baða mig, ekki í tárum þó. mikið fannst mér skelfilegt að horfa upp á öll þessi veslings börn þarna sem missa foreldra sína í umvörpum úr alnæmi og eru sum hver sjálf smituð af þessum faraldri 21. aldarinnar. hvers eiga þau að gjalda, sakleysingjar sem eiga ekkert skilið nema ást og umhyggju og við gerum ekkert annað en að kvarta. vestrænar kjökurdúkkur sem við erum. ég ætla að reyna að bæta mig og ég ætla líka að fá mér barn til að styrkja. síðan var ég að horfa á fréttir og þá eru einhverjar óeirðir í haítí þar sem að einhver uppreisnarræningjaflokkur er með allt í hers höndum og lögreglan skýtur alla þjófa og lætur þá liggja á götum úti og rotna til aðvörunar fyrir almenning. huxið ykkur hryllinginn! þess vegna var ég skiljanlega full efasemda allt gærkvöldið um framtíð mína. ég er þá að meina hvað maður er alltaf svo óánægður og vælandi...æ
gleðifréttir! það eru til kort fyrir fólk sem er að verða 25 ára og american splendor verður frumsýnd í bíói á morgun. ég hlakka mjög mikið til að sjá hana. jeiijjjj!!! og sexandthecity byrjar aftur 11. mars sem að ég held að sé persónuleg afmælisgjöf frá rúv til mín. jæja, gotta go. see ya... og föstudagur á morgun, jeijjjjj og útborgun, jeijjjjj og ég ætla að vera drunk um helgina, jeijjjjjjj. luv ya!
love me

miðvikudagur


love me
þarna áðan var ég búin að skrifa heillanga og fyndna færslu sem hvarf svo út í buskann þegar tölvan í vinnunni fraus. ég semsagt viðurkenni mistök mín hér með því að seinasti þátturinn með spíttmæðgunum var í gær en ekki næstseinasti eins og ég svo vongóð hélt fram. rory og jess náðu ekki saman á ný en eins og þetta endaði hef ég grun um að þær mæðgur muni aftur heiðra oss með nærveru sinni. mér til mikillar gleði þó útskrifuðumst við rory á sama tíma nema hún úr chilton og ég úr lhí og ég grét líka undir græna teppinu mínu þegar hún flutti útskriftarræðuna sína. það sem eftir lifði kvölds strikaði ég undir í sjónvarpshandbókinni það sem ég má alls ekki missa af í tívíinu og hélt áfram að fara í gegnum geisladiskana mína og skrifa niður þau lög sem ég ætla að láta á mixdiska fyrir afmælið mitt. eftir alla 3hundruð og eitthvað diskana mína eru 123 lög sem standa upp úr og verður dansað við í afmælisveislunni, allt frá justin timberlake og kylie til nine inch nails og marilyn manson. ég enduruppgötvaði líka yeah yeah yeahs sem eru allveg hreint mögnuð og skemmtileg hljómsveit. svo má auðvitað ekki gleyma góðmenninu gulla sem kom til mín og þóttist vera að gera mér greiða með því að lána mér amelie svo ég geti stúderað fötin hennar en var í raun og veru bara að sníkja sígarettur og kom ekki einu sinni með saltkjöt og baunir í tubberware handa mér... nei bara grín gulli. þú ert fínn.
í kvöld ætla ég að kasta upp á hvort ég eigi að vera blúbb eða blimm í grímupartýinu mínu og hvernig bollu ég eigi að hafa. svo er líka nýji þátturinn á stöð 2, miss match sem er æði og frá sömu framleiðendum og sexandthecity ef einhverjir digga þær.
talaði við bryncí í gær en hún er að fara til frakklands á mánudaginn og verður þeirrar gæfu njótandi að hitta besta yndið mtt hana birtu. ef einhver vill gefa mér flugmiða til france í afmælisgjöf væri það afskaplegavel þegið. það væri hægt að hafa söfnun, tinnu heim eða eitthvað. annars ætla ég af gefnu tilefni að hitta hana bryncí á föstudagskveldið og ætlum við að borða bjúgu og maka hvor aðra í vaselíni. það verður byrjað að selja inn um klukkan 4, taliði bara við dverginn í hurðinni.
afmælisóskalisti:
1. dvd spilari
2. sexandthecity á dvd, sería 4&5
3. handryksuga
4. baðvog úr þorsteini bergmann
5. expressókönnur, minni og stærri stærð
6. glerhjálmurinn eftir sylviu plath
7. tónlist
8. kynferðismök
þessi listi mun halda áfram að lengjast fram að afmæli. hey! ég er ekki frek, bara að auðvelda ykkur, auk þess liggur frami listi í tékk kristal. see ya!
we´re all lesbians when the right guy isn´t around

love me

þriðjudagur

ég vek athygli á því að ég fékk bollu í gær en í kvöld mun ég hins vegar ekki fá saltkjöt og baunir þó ég hefði ekkert á móti því. ef einhver vill bjóða mér í saltkjöt og baunir væri það vel þegið.
annars fór ég í gær á house of sand and fog með litla og hulla. hún er svosum ágæt ef þú vilt fá mannlegan harmleik beint í æð, þ.e. myndin ekki litli. langdregin en ágæt. ég held samt ég taki mér pásu á dramantíkinni. undanfarið hef ég bara séð myndir þar sem fólk deyr í umvörpum og konan fær aldrei að kyssa manninn sem hún elskaði alltaf eða eitthvað. kannki spíttmæðgurnar lyfti mér upp en það er einmitt næstseinasti þátturinn í kvöld og það er spennó að sjá hvernig þetta fer með rory og jess.
ég og litli erum svo spenntar fyrir helgina að við erum með niðurskrifað plan frá föstudegi til sunnudags samt virðist sem að það eina sem við munum gera er að mála okkur og vera fullar og vergjarnar.
ég er að deyja í mjóbakinu eftir bíósætin og ég veit ekki alveg hvort ég eigi að vera glöð eða í öngum mínum yfir því að líf mitt sé eins og öskubuska, the movie.
ég hlakka svo til að horfa á óskarinn en ég verð líka engill í vinnunni á morgun, öskudag. see ya!
love me
CWINDOWSDesktopCinderella.JPG
Cinderella!


What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla


love me
we´re all lesbians when the right guy isn´t around...
love me

mánudagur

p.s. ég steig líka í hundaskít í gær...
love me
bloggið í dag er tileinkað andy warhol en í gær voru 17 ár frá því að hann lést. heil andy warhol, húrra húrra húrra!
ég fór í bíó á föstudaginn á cold mountain með hulla, litla og prinsinum. og mikið ofboðslega var þetta góð mynd. hún bestnar bara og bestnar í minningunni. ég er samt ekki sátt við endinn, segi ekki meir. eftir bíóið fórum ég og litli bara heim og urðum typsí af rauðvínsflösku sem við höfðum keypt okkur fyrr um daginn. hulli kom svo til okkar og við horfðum á svínasúpuna sem ég er nokkuð viss um að ég hafi aldrei séð öðruvísi en undir áhrifum áfengis... síðan sofnuðum við bara öll, andskotans krúttin sem við erum. ég og litli áttum ljúfan laugardag saman og leiddumst um bæinn, rjóðar í kinnum. ég gerði ekkert á laugardagskvöldið. þess vegna segi ég með góðri samvisku að ég hafi tekið því rólega um helgina. mér fannst ég samt vera skilin útundan, veit ekki afhverju.
í gær sunnudag og konudag var ég að vinna. það var alltílæ nema að sunnudagar í vinnunni eru rosa lengi að líða. en ég fékk yndislegar konudagsgjafir, maður þarf sko engann kærasta til að fá svoleiðis. ég fékk rosa skemmtilegan og heimatilbúinn mix-disk og gott kaffi sem kom sér svo vel því að það er ömurlegt að hafa ekki efni á kaffi og það er staðan sem ég er í einmitt í þessa dagana. svo að í morgun dillaði ég mér nakin við mix-diskinn og drakk kaffið þangað til að það skvettist á brjóstin á mér. frábær byrjun á viku!
ég fór í afmæli til litla frænda í gær, hann er svo sætur og ég held að honum finnist ég skemmtileg. ég sem hef sjaldan verið rosa hrifin af börnum er kolfallin fyrir þessum nýja og litla glókolli.
burberry fjölskyldan: í gær, sunnudag í vinnunni bað ég þess að eitthvað óvenjulegt gerðist. fyrir utan að það var maður að ræna bókum kom inn burberry fjölskyldan. það voru kona, maður og tveir unglingar, strákur og stelpa. þau voru öll í svona húðlituðum eða brúnum yfirhöfnum með burberry trefla. ég er ekki að grínast. öll sem eitt og á meðan hjónin spjölluðu saman á tærri íslenku deildu unglingarnir á rosalegri amerísku. ég hugsaði bara; whatttt!?!?!?! burberry hell!!! see ya!
love me

sunnudagur

You are Lost Emily!! You prefer to stay
Lost Emily


Which Emily Strange are you?
brought to you by Quizilla


love me
vinna á sunnudegi... ojj, hata sunnudaga!
love me

föstudagur


love me
ég veit ekki hvað er að mér en ég hlakka til að vera búin í vinnunni í dag og fara í helgarfrí... er ekki lengur viss með kvöldið. ég og litli erum jafnvel að hugsa um að slá til og hafa í þetta sinnið margumræddu rauðvín og rómantík.
á morgun fer ég í hommamatarboð hjá elsku vini mínum honum inga birni. við getum rakið sögu okkar langt aftur í tímann allt til þess þegar ég átti kærustu og kallaði sjálfa mig trukkinn, gekk í engum brjóstahaldara og ermalausum bolum. nei, allt grín nema með kærustuna. hann gerði meira að segja einu sinni heiðarlega tilraun til að homma mig þegar við bjuggum í danmörku, ég og kellingin og bauð mér yfir til svíþjóðar á cher tónleika og straujaði það allt á kortið. það var reyndar rosa fjör á cher og sænskir mc donalds eru betri en danskir og íslenskir. hann ingi björn bjargaði svo síðar geðheilsu minni þegar hann fór heim á fróna með kellinguna en þá var ég orðin inniskóaberjandi wifebeater í köben. gleymi því seint en hún átti það allt skilið. ég býst ekki við öðru en frábæru kvöldi í inga faðmi.
annars er gestalistinn í afmælið mitt farinn að lengjast ískyggilega, og vona bara að gestirnir geri sér grein fyrir því að það er rúmlega fermeter á mann.
ég er svo ennþá að auglýsa eftir manni til að sofa hjá, ég er mjög liðug.
þá óska ég ykkur bara góðrar helgar hvar sem þið eruð, nær og fjær. see ya!
love me
föstudagur, jeiiijjjjjj!!! fór í kringluna með mömmu í gær og hún gaf mér buxur og bol. það gladdi mig því ég er fatamanísk en lét mér líka líða pínu eins og ég væri aftur 15 ára. ég varð síðan aftir glöð í morgun þegar ég heyrði í hulla í útvarpinu sem er nú alveg nógu góð ástæða til að gleðja mig en hann var líka að segja að christian bale eigi að leika batman í næstu batmanmyndinni og þá hoppaði ég hæð mína í loft upp því ég digga christian bale og ég eeeeellllllska batman. en það sem átti að verða róleg helgi framundan stefnir í að verða allt annað en það. later!
love me

fimmtudagur

the dingo took my baby...
love me
blogg dagsins í dag er tileinkað litla sæta frænda mínum honum ástþóri erni sem nú á að baki eitt heilt ár á þessari jörðu. til hamingju með eins árs afmælið og allan daginn elsku ástþór litli örn.
love me

miðvikudagur

blogg dagsins er tileinkað manni sem mér þykir afskaplega vænt um og á 30 ára afmæli í dag. þetta er hann arnar eggert thoroddsen, fyrrverandi mágur minn en jafnframt góðvinur. til hamingju með daginn arnar, hvar sem þú ert!
þar sem ég lá í baði í gær, lesandi bridget jones fór ég að hugsa um hvað ég væri smábarnaleg að hlakka svona til afmælisins míns. jafnvel of sjálfhverf. en ég hef reyndar alltaf verið svona og komst að þeirri niðurstöðu að það er ekkert athugavert við að hlakka til afmælisins síns sama hversu gamall maður er að verða. og ég held ég muni aldrei hætta því. heill dagur, bara fyrir mig... hvers vegna ekki að hlakka til??? fyrir 5 árum þegar ég varð tvítug var ég að vinna í nýkaup í mosfellsbæ. mamma var búin að reka mig að heiman og ég var að passa íbúðina fyrir pabba því hann var í tælandi að leita sér að konu á mínum aldri. ég átti kærustu sem hét og heitir vonandi ennþá hrafnhildur(nafn sem á augljóslega eftir að fylgja mér um aldur og ævi), hún hélt síðar fram hjá mér með manni sem ég hata. þrátt fyrir allt var ég samt líka skotin í eina og fyrsta súkkulaðistráknum í lífi mínu en hann hét og heitir georg hvort sem þið trúið því eða ekki. ég gef hrafnhildi samt prik fyrir eina bestu afmælisgjöf sem ég hef fengið en það var gömul ritvél sem ég pikka ennþá á endrum og eins ef þannig liggur á mér. ég man engin afmæli fyrir tvítugt. ég man 21, 22 ekki 23 en samt 24.... kannski af því ég hélt ekkert upp á 23.... who knows???
ég er í hádegismatnum að borða ministrone bollasúpu sem ég stal af einhverjum samstarfsmanni því ég á ENGA PENINGA!!!!
þegar ég var komin með krumpaðar tær í baðinu í gær fór ég að horfa á paradise hotel sem mér finnst yndislegur þáttur og sá allra geðveikasti. með því drakk ég einn bjór til að slá á sárasta hungrið en þennan bjór fann ég í ísskápnum, held samt að hann sé upphaflega minn. þar sem að ég hafði ekkert borðað varð ég drukkin af þessum eina bjór og þess vegna fór ég að skæla þegar zack var rekin úr paradise hotel. deildi einhver annar þessari tilfinningu með mér? þegar ég les yfir þessi skrifuðu orð sé ég að ég ætti kannski að fara að róa mig í bridget jones... eníveis, ég skil ekki að ég skuli ennþá vera svona mikill hænuhaus. áfengi hefur verið félagi minn síðan ég var kornabarn, eða a.m.k. 12 ára.
ég er að fara að hitta beibið hana bryncí í kvöld. það verður væntanlega typpasöguframhald hjá okkur. see ya!
love me

þriðjudagur

einnig hef ég dálitlar áhyggjur af klemmda fingrinum sem nú er orðinn blár og þetta blogg er tileinkað þorgerði sem varð 25 í gær...
love me
fór á gothika í gær. jú jú svosum ágæt en ég grét samt ekki. hef pervíska löngun til þess að láta bregða mér þegar ég fer í bíóhús og hún uppfylldi það þó. síðar um kveldið horfði ég á vídjó með þorra, kötu og gulla á sweet sixteen sem er ægilega mikilll mannlegur harmleikur. nú í dag er ég bara svo þreytt því að það eru ormar sem skríða um iðrin á mér og éta mig. og ég og litli ætluðum að mála vinnusalernin í dag. ég verð bara að komast upp í rúm um leið og ég kem heim. baða líkamann og lúlla. en ég skal viðurkenna ástæðu þreytunnar.... ég keypti mér bridget´s jones diary um daginn og ég get ekki hætt að lesa hana, mér finnst hún svo skemmtileg. og hana var ég að lesa til 3 í nótt. í dag eru nákvæmlega 3 vikur þangað til að ég verð 25 og ég verð spenntari og spenntari með hverri mínútunni. gestalistinn er kominn á hreint og allt. nú verð ég bara að byrja á búningnum.... hí hí hí... ég vona að allir muni mig á afmælisdaginn. p.s. maður kom í dag að kaupa blekhylki og sagði við mig að hann kæmi bara til að sjá mig því þá færi hann alltaf í svo gott skap. honum finnst ég víst svo krúttileg og með fyndna rödd. what!!!???? sagði ég bara eins geyfluð og dimmrödduð og ég gat því ég kann ekki að taka hóli. see ya!
love me

mánudagur

föstudagur: rómantíkin sem ég og litli ætluðum að eiga fór út um þúfur þegar við vorum báðar svo þunnar eftir röskvuruglið á fimmtudag. leiðir lágu í sína heima. var bara ein heima eins og fífl, drakk bjór, borðaði rassasnakk og horfði á american ædol. hlakkaði bara í staðinn til laugardagsins því þá myndi vinnupartý vera haldið. af því að ég er hálfur þjóðverji eða kannski skilnaðarbarn vaknaði ég kl. hálf 9 á laugardagsmorgunn þegar planið hafði verið að sofa allavega til 11. en það gaf mér þó nokkuð drjúgan tíma til að þrífa og það var það sem ég gerði í morgunbirtunni með hárið allt út í loftið. klósettið er svo hreint og vel skrúbbað að ég myndi bjóða minni eigins móður að borða af því. litli kom fyrst til mín um kvöldið og núna er ég nokk sannfærð að það hati mig allir í vinnunni nema fjórir því það er jafn margir og komu til mín. ég fæ meira að segja niðurlægingarhroll að skrifa það. take it like a man hugsaði ég bara og grét. það er líka eitthvað við að drekka með yfirmanninum sínum. mér leið næstum eins og þegar ég er að horfa á sjónvarpið með mömmu og það kemur kynlífsatriði, samt ekki alveg svo slæmt. engu að síður hlaut allt að enda á því að við, ég og litli og H færum á sirkus sem við og gerðum. þar var allt við sama heygarðshornið, allir drunk og dansandi. ég hef um nokkurt skeið fylgst með einum manni á sirkus, ekki af því að ég hafi rómantískan áhuga á honum heldur af því að það bregst ekki, hvort sem ég er þar fös eða lau þá er hann alltaf í sleik við nýja og nýja stúlku úti á miðju dansgólfi um það leyti sem að staðurinn er að loka. og ég er að tala um SLEIK, munnvatn og froða útum allt. þetta ku þó ekki vera óeðlilegt hjá piltum né stúlkum. stóri maðurinn var líka þarna og strauk lokk frá enninu mínu sem mér fannst óskaplega rómantískt. annars löbbuðum við skytturnar 3, ég litli og þorri bara heim þegar búið var að loka. litli sofnaði strax þegar heim var komið og ég og þorri fórum á trúnó sem við munum samt tæplega eftir og sofnuðum svo bæði talandi í sófanum. óskaplega krúttilegt. sunnudagurinn var óskaplega skemmtilegur í þynnkunni. það er svo gott að vera umvafinn sætum vinum á þynnkudögum. hulli minn kom meira að segja, flýjandi þetta none stop fuck fest sem er alltaf heima hjá honum. það ku víst líka vera eðlilegt hjá piltum og stúlkum. hey! pásan búin. see ya!
love me
ég er svo ekki tilbúin fyrir þennan mánudag. svaf í næstum 9 tíma í nótt og vaknaði samt að deyja úr þreytu og post þunn. klemmdi svo fingurinn í vinnunni á níðþungri skúffu svo að nú er hann tvöfaldur og hjartsláttur í honum. það urðu meira að segja eftir skinn, naglalakk og pínu af nöglinni á skúffunni. misstirðu matarlistina? later...
love me

föstudagur

gvuð hvað ég er fegin að það er föstudagur í dag. theink god!!! það aftraði þó ekki af mér að fara á blindafyllerí í gær með litla og hrafnhildi. byrjuðum á kb og enduðum á kosningavökunni hjá röskvu. þó gerðu ég og þrándur heiðarlega tilraun til að fara á kosningavökuna hjá óvininum(vöku) því þar átti að vera frítt vín en svo var ekki og því snérum við við í dyrunum. á grandrokk var rosa stuð þó að röskva hafi tapað. ég dansaði meira að segja og stóð lítið í lappirnar. ég gisti á milli litla og h og leið eins og frændunum.... sofnaði með maskarann en svaf vel og vaknaði rosa þunn. skömmin hún beta lét mig hlaupa um allt með bjór handa sér eins og blindur hvolpur en hvað gerir maður ekki fyrir sætar stelpur. ég og litli erum í rólegheitum í kvöld, bara rauðvín og rómantík. og það gladdi mig einstaklega að komast að því að það er hitchcock helgi á rúv, í kvöld er psycho sem mér finnst vera snilld, þ.e. gamla.... djamm á morgun með vinnuliðinu, það verður nú eitthvað. ég er svo þunn að ég get varla bloggað.....
en getiði hvað!!!! ég er að fara að leika í heimildarskopmynd um slæm áhrif gsm síma. þarf meira að segja að leika nakin, ég og síminn að elskast... neibb, grín. en ég er í alvöru að fara að leika í þessari mynd. i´m a moviestar!!!! well, gotta go, pásan búin. skrifa kannski um helgina en annars góða helgi allir saman. ég veit þið eruð þarna, er með teljara motha!!! kiss kiss

love me
þunnur.....
love me

fimmtudagur

nú ég er hérna í hádegismat. af hverju á halle berry að leika catwoman? ég þoli ekki þessa leikkonu og hún er langt frá því að hafa þann kynþokka sem catwoman hefur. demitt!!! og ruth reginalds... what is going on hérna á íslandi??? ef henni á annað borð finnst hún vera svona viðbjóðslega afskræmd, hvers vegna leyfði hún þá að hafa mannhæðarhátt auglýsingaspjald með mynd af sjálfri sér á í jólabókaflóðinu til að auglýsa þessa bók sína... hún lýtur ósköp venjulega út og þessi mynd var ekki vitund photosjoppuð. en það má henda 5 milljónum í þetta á meðan það eru fjöldauppsagnir á spítölum og fórnarlömbum nauðgana er sagt að fara bara heim í sturtu því það er búið að loka neyðarmóttökunni. djöfuls firring!
að léttara hjali... ég og litli fórum áðan að kaupa málningu í brynju því við fengum það góða verkefni að mála salernin hérna á vinnustaðnum okkar. það er rosa fínt og mér er sama ef að í því fái 7 ára listnám mitt sína einu uppreisn æru! see ya...
love me

miðvikudagur

jessss! dagurinn loksins búinn. ég var pínd til að vera lengur að vinna útaf veiku fólki. helvítis andskotans huxaði ég og var hálftíma lengur en þá sagði ég hingað og ekki lengra. þetta poppbrauð þarna í hádeginu dugði ekki lengur.
en í gær átti ég yndislega stund þegar ég fór á bíó á lost in translation. guð minn almáttugur hvað þetta er góð og falleg mynd. og músíkin, þvílíkt og annað eins. þakka þér svo mikið fyrir elsku kæri gulli að hafa lánað mér fyrir bíóinu. þetta er ein fallegasta mynd sem ég hef séð. einlægasta samband milli tveggja manneskja sem ég hef á ævinni orðið vitni að. og kvikmyndir eru raunveruleikinn. ég trúi því og líf tinnu er kvikmynd. lost in translation fer á listann minn en þar trónir samt enn snillingurinn amélié. ég varð glöð af því að fara með vinum mínum í bíó
en getiði hvar ég er? júbb, á bókasafninu, ég sagði bara fokk it og eyddi 200 kr. í internet aðgang sem ég gat lofsamlega tekið umfram á kortinu mínu eftir að hafa keypt 9 króna blýant. kannski ég taki einhverja góða reifara, eitthvað erótískt máske... ég er mjög erótísk þessa dagana og varð eiginlega sjálfri um og ó þegar ég festist í gærkveldi yfir popp tíví eins og svo oft áður. þá voru piltarnir í westlife sem annars er viðbjóðslegt boyband að syngja mandy hans manilow (kann ekki að skrifa það). nema hvað að allt í einu fór mig að lengja eftir öllum piltunum í bandinu og emjaði af frygð. ég er að breima big time í vesturbænum. ennþá!
en hvað um það... þá er eins og þið vitið afmælið mitt á næsta leiti. og þar sem ég er að verða svona andskoti gömul og þetta er stórafmæli, ætla ég að sjálfsögðu að halda upp á það. málið er bara hvenær... það koma 2 laugardagar til greina. annars vegar 6. mars og hins vegar 13. mars. ég hef alltaf verið hlynnt því og frekar viljað halda afmælið helgina eftir sjálfan afmælisdaginn. finnst meira fútt í því að fagna þessum tímamótum þegar þau eru runnin í garð og því myndi maður ætla að afmælið yrði haldið 13. mars þar sem að sjálfur afmælisdagurinn er 9. mars. nema að problemið er að 13. mars er árshátíð í vinnunni og þá hef ég bara áhyggjur af því að fólk sem eru vinir mínir í vinnunni vilji frekar í árshátíð en afmæli hjá tinnuling.. eins og þið sjáið lifi ég afar vernduðu lífi þar sem að þetta eru helstu áhyggjurnar mínar. það væri fínt að fá álit ykkar. bæ ðe wei þá myndi ég frekar mæta í afmælið mitt en á árshátíðina, langar ekkert spes lengur að fara þangað.... og allir! þetta er grímuartý og þemað er WHO´S YOUR HERO? ég á samt eftir að dreifa boðskortum. gott að hafa fyrirvara því það er jú mjög erfitt að ætla að henda saman metnaðarfullum grímubúning á einum degi. og ég vil sjá metnað! nú verðið þið bara að finna hver er hetjan ykkar... hahahahaha það er sko erfiðara en maður heldur. ég er sjálf í miklum vandræðum. kliss kiss.
love me

þriðjudagur

p.s. ég á afmæli eftir nákvæmlega 4 vikur í dag. yesssssssss....
love me
hey! ég var á námskeiði í morgun. ég hef farið á mörg námskeið síðan ég byrjaði í eymundsson. námskeiðið í morgun hét vörn gegn vágestum. þegar ég segi þennan titil inni í mér hljómar það eins og tröllarómur....VÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖRRRRRN GEEEEEEEGN VÁÁÁÁGESSSTUM!!!!!! og í miðju námskeiði ruddist allt í einu hettuklæddur maður inn í salinn og öskraði; peningana, komiði með peningana!!! ég sagði bara; whaaaaattttttttt???? ég á enga peninga. síðan stóð ég upp og sparkaði í punginn á honum. litli fór líka að skæla því henni brá svo ég ég hélt utan um hana og ruggaði í svefn.
í seinustu viku hafði ég ekkert að gera því ég hélt að ég ætti enga vini, en ég á semsagt vini. allavega, þá brá ég á það ráð að gera skoðanakönnun á plastpokum. í vinnunni eru þeir of stífir, gefa ekkert eftir og eru í þokkabót algjörlega ferkanntaðir og fara því ekki vel í ruslatunnunni. í bónus eru þeir hefðbundnir í laginu en úr afskaplega þunnu efni. svo að þegar ég hef átt enga aðra úrkosti og þurft að notast við bónuspokana er ég hef verið að skipta um salernissand hjá börnunum mínum hefur það gerst að þeir rifna og saur og piss og sandur útum allt. pokarnir úr átvr eru hins vegar rosa góðir og sterkir og hefðbundnir í laginu. það eina slæma við þá er að oft eru áfengisumbúðir oddhvassar s.s. faxa bjórinn sem ég kaupi alltaf. þá á pokinn það til að fá á sig pínulítil göt sem ég tek ekki eftir og þegar ég hendi notaða kaffikorginum í þá í ruslinu dreifist korgurinn út um allt gólf og ég renn allsber á bossann. 10-11 er sigurvegarinn. níðsterkir, góðir í laginu og rifna aldrei. bera kattasand og allann annan úrgang. húrra fyrir 10-11... og er snöggur að því.
í gær fékk ég hugmynd að því að blogga um vini mína. það næst....
ég er mjög liðug. blex.
love me

mánudagur

eníveis... vinnudagurinn loksins búin. enginn andfúll í dag, bara snobbnef sem halda að ég sé hér til að þjóna þeim. helgin var fyndin og skrýtin en það var rosa gaman í afmælinu hennar lóu. og litlu drengirnir þar voru líka óskaplega fyndnir, hvaðan koma svona litlir piltar? ég var sjálf ung í anda og fór í sleik, segi ekki meir en sleikur er bráðfyndið orð. allt svo fyndið í dag... og indverskur draumur í gær hjá stóru systur. nú er ég að fara á kaffihús með litla. ég elska litla og litli elskar mig... by.
love me
kominn mánudagur. ég hata mánudaga! og strax vesen... kaffið var of þunnt og ég er með bólufjölskyldu á kinninni...
love me

sunnudagur

glöggir lesendur taka máske eftir breytingum á síðunni minni. ég vona að þessar breytingar valdi ykkur ekki vonbrigðum. ég á að vísu aðeins eftir að fikta betur í litunum en það verður gert í góðu tómi. ég er svo agalega heppin að hafa tölvunördinn hana móu á mínu bandi, hún sýndi mér öll þessi handahlaup á netinu og nú getið þið glaðst með mér ef þið viljið. ég er í þessum skrifuðu orðum stödd á listasafni íslands þar sem að hún móa mín leggur stund á kaffihúsastörf aðra hvora helgi. það kom sér heldur betur vel því ég er svo þunn eftir skemmtun gærkvöldsins og þá er gott að fá eins mikið af kaffi latte og mig lystir mér algjörlega að kostnaðarlausu. annars var ég í þessu fína partýi hjá henni lóu í gær sem hún hélt á tryggvagötunni í tilefni af kvartaldarafmæli sínu. ég varð ósköp drukkin og er það jafnvel enn. fer í kveld í mat til stóru systur og mér skilst ég fái þar tandoori kjúkling. ég get ekki skrifað meir því ég get varla huxað. en ég var óþekk stelpa í gær og það ætti að rassskella mig. vill einhver rassskella mig? blex...
love me
gleðilegan sunnudag!!!
love me
gleðilegan sunnudag!!!
haf?u ?hrif ? mig

fimmtudagur

sæl þá. ég viðurkenni fúslega að vera aldeilis búin að skíta á mig hvað varðar bloggiðkun. en í sannleika sagt þá hef ég ekki átt krónu með gati til að fara á bókasafnið og blogga. en eins og ég sagði ykkur frá áður þá kostar 200 krónur nú orðið að fara á internetið á bókasafninu. og enn á ég ekki pening, allt fór í reikninga og kattamat. er í vinnunni að nýta mér internetaðgang þar í pásunni. það er svo að frétta að eftir að hafa viðurkennt hrifningu mína á mönnum og konum hefur leiðin legið niður á við. andskotans lýður sem verður á vegi manns. og það nýjasta er svo að ég greindist með krabbamein í eistunum sem er búið að grassera svo lengi að mér er vart hugað líf og á ekki meira en 5 daga ólifaða. kona laug að ég væri kleptómanísk og rændi úr búðarkössum og það ku vera almannarómur að ég hef áður verið rekin úr vinnum fyrir stuldur. ég á ekki til eitt einasta orð. ég fæ 89 þúsund krónur á mánuði í laun og ég er virkilega að gera mér vonir um að kaupa mér íbúð. cheerioos er það sem ég borða í öll mál og ég planlegg kvöldin eftir sjónvarpsdagskránni. stundum er ég full í náttfötunum og öskra sexbomba hástöfum en svoleiðis á víst að lækna lágt sjálfsmat. ég er ástfangin af ástinni en get ekki fundið neinn til að elska. ef allt blessast og þeir fjarlægja eistun fer ég í glasafrjóvgun þegar ég verð 30 ára. þangað til geri ég mér vonir um að menn falli að fótum mínum. þetta blogg er tileinkað svanborgu sem á afmæli í dag og er 37 ára að öllu gríni slepptu. blex rass.

laugardagur

haaaa? já það er laugardagur og ég sit með bryncí bestu vinkonu minni, prjóna og tala um typpin á fyrrverandi kærustum. andskotans seinustu dagar, það hlaut að koma í hausinn á mér hvað ég er búin að tala vel og mikið um nýfengna lífshamingju mína. seinustu dagar hafa verið hell. og ég ég er ekki eins vinamörg og ég taldi mig vera. engin furða, það nennir enginn að hanga með fýlupúka. ég er þó búin að finna lausn á þessu og borgaði bryncí fimmþúsundkrónur fyrir að halda utan um mig meðan ég lægi grátandi í fósturstellingu í sturtunni. ég held að það megi rekja þetta allt til óhóflegar drykkju og vanrækslu á sálinni. þess vegna tók ég mér líka drykkjupásu þessa helgina. eftir að hafa verið drukkin seinasta miðvikudag, smurrebröd með múttu, bjór og allt fóru tilfinningarnar á fullt þegar ég sá fyrrverandi manninn minn í sjónvarpinu og eyddi restinu af kvöldina í að gráta úr mér augun. þá var ekki aftur snúið og síðan þá hefur ekki lokast fyrir tárflóðið og naðra í vinnunni og vill einhver halda utan um mig helvítis fíflið þitt... verð fyri vestan fram á sumar og ekkert símasamband. leshringurinn kominn á fullt og nú er bara brúðkaupið næst á dagskrá. bless.

fimmtudagur

þess má geta að david bowie á einmitt afmæli í dag svo að þetta blogg verður tileinkað honum, að eilífu bowie!!!!
já, það er komið 2004 og eins og sannur hræsnari er ég með nokkur áramótaheit í erminni. eitt þeirra er að blogga a.m.k. 5 sinnum í viku, talið frá sunnudegi til mánudags. ég fattaði upp á þessu í gær svo að ég er á séns í dag. ástæðan fyrir því að ekkert hefur í mér heyrst undanfarið er að alla daga klukkan fimm er ég hef lokið 8 klukkustunda vinnudeginum mínum er ekkert meira heillandi en mitt ástkæra heimili og börnin 3 sem þar bíða mín. þess vegna nenni ég aldrei á bókasafnið til að blogga og ekki hef ég internetið á heimabæ. en á þessu verða hér með breytingar. af hverju? tja! ég veit það bara ekki. kannski af því að þarna sé ég ritsnilld mína einna helst njóta sín. mér blöskrar þó að nú þarf ég að borga 200 krónur í hvert skipti sem ég vil fara eina klukkustund í tölvuna hér á bókasafninu. það gerir 1000 krónur á viku og 4000 á mánuði. ef ég hefði vitað þetta myndi áramótaheitið kannski hljóma aðeins ódýrara. en hvað um það, þetta er aur vel varið.

annað áramótaheit er að byrja að læra á hljóðfæri eða fara í dans, tangó eða magadans. ég held ég velji dansinn þetta árið og hljóðfærið næsta. mig langar svo að gera eitthvað gott fyrir líkamann. magadans finnst mér ægilega heillandi og erótískur. ég er mjög erótísk þessa dagana. hugsa um fátt annað en samfarir við ókunnuga menn. á barnum reyni ég svo að nugga mér upp að fólki og væli ámátlega í eyru þess í von um að fá fullnægju... nú, þarna var ég aðeins komin út fyrir sporið. kannski ég gerist erótískur rithöfundur. ég er nú bara að gera gys. mér líður ósköp vel, frjáls eins og fugl og skotin í öllum í kringum mig. þó að það sé vetur úti líður mér eins og það sé vor í hjarta mínu.

áramótaheit 3. hafa meira samband við stóru systur mína sem einmitt varð fimmtug í gær og litla bróður minn sem er eiginlega ekki litli bróðir minn en hann verður 17 ára núna í janúar líka. ótrúlegt!

seinasta. að sjálfsögðu svo að bæta mannlegu þættina. gengur ekkert rosa vel. ég er nokkrum sinnum búin að blóta fólki á þessu ári sem ég átti ekkert með að vera að blóta. mér finnst það alltaf versti lösturinn fyrir utan að vera morðingi og barnaníðingur. að agnúast út í aðra.

ég þoli eiginlega ekki gamlárskvöld. aðallega af því að ég var ekki kysst. allavega ekki á munninn.

ég er frekar hamingjusöm. ég skil ekki af hverju. ég er drukkin out of my head um hverja einustu helgi. ætti líffræðilega ennþá að vera að jafna mig eftir dópneysluna í hollandi sem á víst að gera mann þunglyndann. kannski af því að ég þekki besta fólkið.

jæja, komin með tár í augun og ætla ekki að ofgera mér svona nýkomin úr fríi.

þriðjudagur

sæl veriði öll. mikið leiðist mér andfúla liðið sem verslar hér í búðinni minni.
fyrir tilstuðlan ágætra samstarfsmanna hef ég nú sagt bloggverkfalli mínu lokið. komiði öll sæl! uppgötvaði líka í dag að nú get ég ekki uppnefnt eða baknagað samstarfsmenn lengur. lifi lífið, húrra húrra húrrrrrrrrrrrrraaaaaaaaa!!!!

sunnudagur

halló þá. í dag þjáist ég af matareitrun því ég borðaði hlöllabát í gær og pilturinn sem afgreiddi mig missti kjötmetið í gólfið og stappaði á því. ég ákvað að þegja yfir því því ég vildi ekki vera pirrandi viðskiptavinur. þess vegna uppskar ég ælupest og það sem því fylgir útum hitt opið. vonandi skiljið þið. ég átti samt að vera að vinna aukavakt í skemmtilegu bókabúðinni minni í dag en sökum veikinda komst ég að sjálfsögðu ekki. hvernig stendur á því að mér tekst alltaf að verða veik helst á fyrstu viku í nýrri vinnu. allavega hljóp allt í misskilning og ég náði ekki að láta stúlkuna vita sem er yfir í dag heldur lét ég bara verslunarstjórann vita. ég vissi ekki að þessi stúlka ætti að vera yfir í dag og verslunarstjórinn í helgarfríi. stúlkan sú sem ég ætla ekki að nefna á nafn hringdi í mig ægilega reið og jós úr skálum reiði sinnar og sagðist sko ekki vilja hafa fólk eins og mig í vinnu þarna. mig grunar reyndar að það hafi eitthvað legið illa á henni en kommon! þar sem að ég er einstaklega viðkvæm fyrir skömmum þegar mér finnst ég ekki eiga þær skilið felldi ég nokkur tár og hringdi skælandi í ástmann minn. hann stappaði í mig stálinu því hann er voða góður í því og þá leið mér aðeins betur og brá á það ráð að hringja bara í verslunarstjórann til að koma í veg fyrir allan misskilning og að rétt yrði farið með staðreyndir. hún er voða góð og huggaði mig og sagði að allt væri yndislegt og ég ætti nú bara að láta mér batna. mikið er hún góð. og svei á fúlu stelpuna. vonandi fótbrotnar hún eða slefar á sjálfa sig í miðri afgreiðslu.

í gærkveldi voru mínuspiltar með útgáfutónleika ásamt manninum mínum. mikið voru þeir nú allir sætir. ég er ekki frá því að ég sé skotin í öllum karlmönnum.

vinnan er mjög skemmtileg og dagarnir líða eins og rakettur á leið út í himinhvolfið og vikurnar líka.

föstudagur

og drekk bjór :)
já! komiði öll sæl. nú sit ég að sumbli heima hjá móu því hún er að nota líkama minn. ég verð semsagt módel fyrir hana annað kveld á sjálfa menninganótt. listasafn íslands kl 1/2 tíu fyrir þá sem vilja koma. vinnan er frábær. dagarnir líða eins og vindurinn og allir svo indælir og góðir. nú hlusta ég bara á ska og fer bráðum í jóga. bless.

þriðjudagur

halló. ég er semsagt í ákaflega úrillu skapi í dag og mun það vera vegna fyrirtíðaspennu. auk þess er ég komin með dálítinn kvíða í mallann því á morgun klukkan 9 byrja ég í nýju vinnunni minni. ég tel mig ekki vera óeðlilega, hitt þó heldur því flestir sem ég þekki eru kvíðnir fyrir ný störf. ég biðst því hér með fyrirfram afsökunar ef ég hitti einhvern í dag og hvæsi á þá. auk þess vantar mig nýtt skattkort. ég nenni ómögulega að tala meir. eini ljósi punkturinn við daginn í dag er símafundurinn sem ég mun eiga með manninum sem ég elska. bless.

föstudagur

jeiijjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj! gleðilegan dag allir saman! þetta er svo sannarlega dásamlegur dagur þó að himinn sé örlítið grár og ef hann skyldi gráta væri það af fögnuði fyrir mína hönd því getiði hvað???? jú allar sálir heimsins leggið við hlustir, ég og maðurinn sem ég elska erum sameinuð á ný. ó hve glatt er mitt hjarta. við ræddum í gærkveldi vel og lengi hvað betur mætti fara og ákváðum svo að fara bara hægt í sakirnar, ekki ana að neinu. og ég er himinlifandi. við erum byrjuð að deita aftur. ég er svo sæl að ég gæti sprungið. og á eftir fer ég með henni dóru minni að drekka cosmopolitan á metz eins og sönnum sex and the city aðdáendum sæmir. því það er jú ekki bara ég sem fagna því hún dóra var einmitt að klára vinnuna sína í dag. ég ætla að vera súper gella á metz og tala með breskum hreim. hafið það öll sömul jafn gott og ég. bless.

fimmtudagur

komiði þá sæl.
ég furða mig á léttri lund minni þessa dagana. ég ætla samt ekki að jinxa neinu og hugsa mikið um það, þá er þessi létta lund vís með að fara einhvert til andskotans. ég uppgötvaði að það að fá kvíðahnút í magann þegar piltur vill hitta mig geti ekki þýtt neitt gott svo ég ákvað að koma hreint fram. ég sagði piltinum að á meðan ég væri áð sigla þennann úfna tilfinningasæ þyrfti ég að vera ein í bátnum. hann skildi það því hann er hið mesta gæðablóð og auk þess ljóðskáld. auk þess hef ég komist að því að ég get ekki hætt að hugsa um fyrrverandi ástmann minn. ég er búin að reyna að tala dáldið illa um hann og hugsa um allar slæmu hliðarnar hans en það gengur heldur illa að sannfæra hjartað. og samt líður mér ekkert illa yfir þessu. ætli einhver sé að reyna að segja mér eitthvað, kannski forsjónin og almættið. eníveis þá er sá hinn sami með tónleika í kvöld og ég ætla að fara. ekki bara af því að ég er yfir mig ástfangin af honum heldur af því að efnisskráin er mjög spennandi. og nú er ég að sanka að mér vinum til að koma með mér og halda í höndina mína sem á eftir að titra af stressi og eftirvæntingu. kannski ég fái mér eitt rauðvínsglas áður til að róa taugarnar litlu og viðkvæmu.

ég fékk einmitt rauðvínsflösku gefins í gær því ég hélt matarboð fyrir yndislegu nágrannana mína. það er semsagt sálgreinirinn og kona hans læknirinn. þau hafa nú aldeilis reynst mér vel. það er gott þegar maður finnur hlýju frá stað sem maður átti ekki von á að kæmi nein sérstök hlýja frá. svo eftir matinn tókum við skák og drukkum kafii úr hollenskum bollum. ég skíttapaði skákinni að sjálfsögðu en útfrá því kom upp hugmynd um að stofna skákfélag garðastrætis. ég fékk lánaða voða barnalega skákbók sem ég ætla að lesa spjaldanna á milli og svo verður fyrsta skákmót skákfélags garðastrætis haldið. við fengum líka hugmynd um að opna gallerí þarna á garðastrætinu. sú hugmynd er nú í þróun í hugmyndalegu legi mínu.

ef ég væri með internetið heima hjá mér myndi ég skrifa mun meira. ég fæ til dæmis oft sniðugar hugmyndir um miðjar nætur sem mig langar til að deila með ykkur eða þér hjörtur en þá er lítið við því að gera. og að morgni dags eru þessar sniðugu hugmyndir horfnar. ég þoli ekki að sitja hérna á bókasafninu þar sem að allir anga af svitafýlu og ég hata svitafýlu.

ég vona að hann sjái mig í kvöld og að hjartað mitt slær aðeins fyrir hann.

bless.

þriðjudagur

hvunær í andskotanum ætlar húsið mitt að fá sér internetið? ég myndi vera mun bloggglaðari þá.
nú! það er enn að breytast útlitið á þessu bloggi. en semsagt þá er helgi verslunarmanna liðin og mér er svosum sama. var drukkin frá föstudegi til sunnudags og reykti svo dóp í gær í góðra vina hópi. á föstudagskvöldið hitti ég mann og fór með honum heim og á laugardagskvöldinu hitti ég hann aftur og tók hann þá heim með mér. fyrst til að byrja með fannst mér athyglun kærkomin. maður verður eitthvað svo viðkvæmur og sannfærður um að maður sé viðbjóður þegar einhver vill ekki vera með manni eins og fyrrverandi kærastinn minn. svo að mér fannst indælt að indæll og myndarlegur maður girntist mig. kannski er ég kaldlynd og ömurleg en það var bara eitthvað sem ég þurfti en eiginlega ekkert meira. ég til dæmis komst að því, þvert á við það sem ég upphaflega hélt að ég get bara ekki með nokkru móti hugsað mér að fara að stunda kynlíf. eða kannski var það af því að ég laðaðist ekki nógu mikið þannig að indæla manninum. ég nefninlega gæti hugsað mér að sofa hjá nokkrum velvöldum karlmönnum en þeir eru allir hollywoodleikarar og fyrrverandi kærastinn minn. ég held þá að það verði lítið af því. en helgin var engu að síður mjög skemmtileg og alls ekkert þunglynt við hana. og endaði líka svona stórkostulega. ég fór í bíóhús nokkurt í gær með gulla og grjóti á kvikmynd sem engan langaði til að sjá hélt ég nema ég. þetta var unglingahryllingur eins og þær gerast bestar með extra kryddi því það voru inbreedar í henni. þetta var svona x files og scream blandað saman. ég vildi vera kúl þegar við fórum í bíóið og þorði þess vegna ekki að spyrja piltana hvort ég mætti sitja á milli þeirra. en svo sem betur fer atvikaðist það þannig að ég sat á milli þeirra nokkuð örugg því þeir eru jú agalega mikil karlmenni og borðaði poppið hans steins. þegar ég kom heim borðaði ég lifrapylsu og fannst hún góð. á meðan ég var í bíóinu fékk ég sms frá manninum sem ég var að kyssa um helgina og hann vildi hitta mig. ég fékk kvíðahnút í magann.
bless.
djöfull er þetta þroskaheft. ég skrifaði heillanga klausu áðan og svo bara kom hún ekki. allavega þetta með kynlífið var lygi. reyndi að útskýra það áðan, hef ekki í mér að ljúga svona og svo talaði ég eitthvað um sósur lífsins og svoleiðis sem ég held að allir hefðu skilið. og í dag er ég að fara að hitta rosa skemmtilegan vin minn. bless.
jamm.

mánudagur

erótík í vesturbænum - óvenjuleg saga úr lífi mínu.
til að byrja með tilkynni ég hér með að ég er hætt í þunglyndinu sem gekk á frá laugardegi til gærdags. vaknaði í morgun staðráðin í að bæta þetta þar sem að ég er farin að sjá undarlegt munstur hjá fólki í hvert sinn sem mér líður illa. önnur saga og bitur. ég var semsagt mjög þung á brún á laugardagskvöldið og tók eftir því að enginn hafði áhuga á að tala við mig. út frá því bjó ég til shit - list sem nánast allir sem ég þekki eru á. kannski talaði enginn við mig því mér tókst á einstakan og tinnískan hátt að gera mig að fífli á föstudagskvöldið. enn önnur saga. allavega ákvað ég að þar sem að ég væri hvort sem er ein á báti væri lítið fútt í því að hanga heima og íhuga sjálfsmorð svo ég bara brá mér af bæ. ég vissi ekki af mér fyrr en í partýi þar sem ég þekkti engann en þó alla því allir voru frægir þar inni, leikarar og söngvarar og dansarar og stripparar. ég þóttist samt vera kúl og drakk græna kokteila með pippbragði. einn fór að gefa mér auga og ég þori ekki að nefna hann á nafn því ég vil ekki að mynd af mér birtist í séð og heyrt með aldrinum mínum innan sviga. kannski ef ég er ófrísk skal ég nefna hann, ég á að minnsta kosti rétt á meðlaginu. eftir því sem á kvöldið leið varð ég fyllri og málgefnari og myndarlegi leikarinn færðist nær, eða var hann kannski söngvari. og til að gera langa sögu stutta fórum við heim saman. innihaldslaust kynlíf var það eina sem ég vildi og ég uppljóstra því hér með að ég hafði ekki notið ásta síðan 2. janúar á þessu ári. ekki spyrja afhverju. þetta var reyndar í fyrsta skipti sem ég fór heim með einhverjum án þess að bera neinar tilfinningar til hans. hef alltaf verið skotin í þeim sem ég fór heim með í fortíðinni. þetta er nýr kafli í lífi mínu. og við nutumst alla nóttina, ef ég hefði ekki verið hrædd um að einhver heyrði til mín hefði ég hrópað nafnið hans í fullnægjublossanum. svo sváfum við í tvær stundir aður en við drukkum saman kaffi og leiðir skildu með kossi. en hvað það var gott að láta strjúka allann líkamann og heyra einhvern hvísla í eyrað á mér að ég væri guðdómleg og undurfögur þó svo að ég tryði því bara í þetta augnablik. láta einhvern kyssa rakar lendarnar og hvít brjóstin, leyfa mér að hvíla höfuðið á karmannlegri bringu þegar mig langaði mest til að gráta af unaði. og svitinn okkar lak saman og vætti rúmfötin sem ég svaf í ein í nótt. þetta var bara það sem ég vildi og þess vegna vaknaði ég glöð í morgun. bless.

laugardagur

jæja. laugardagur og ég finn fyrir þynnku. ég er samt að drekka gin í tónik núna og skolaði niður smá snarli áðan á kaffibrennslunni með bjór. reyndar er ég bara að drekka núna því ég er þjökuð af smá bömmer eftir gærkvöldið þar sem að ég gerði sjálfa mig einum of berskjaldaða fyrir særindum og að sjálfsögðu er ég dáldið sár núna. þó mest út í sjálfa mig. stundum misskilur fólk velvilja manns og heldur annað en það sem er. til dæmis virðist öllum þykja það mun alvarlegra þetta skot mitt en það í raun og veru er, þar á meðal sá sem ég er skotin í. ég er bara skotin. auk þess vildi ég vera góð við einhvern sem er vinur minn og mér fannst hann alls ekki nógu þakklátur en það er nú venjulega eins og það er. síðan finnst mér sumir vera fífl því ég er í raun og veru dásamleg.

ég fór í kolaportið áðan með móu og arnari og þá var eins og við værum komin til helvítis eða á geðsjúkrahús. tónlist sem heyrðist úr loftinu hljómaði um allt og allir voru með tryllingslegt augnaráð og lyktuðu undarlega. en eins og venjulega lyktar allt undarlega. ég hitti líka ófríska vinkonu mína.

nú ætla ég að gleyma öllu og vera glöð. ég ætla að sofa hjá í kvöld. ég hér með legg undir milljón að ég mun njóta ásta í kvöld. bless.

föstudagur

já, mikið er nú lífið skrýtinn hlutur. fyrir nákvæmlega viku síðan var mér allri lokið en svo skyndilega á mánudag snérist gæfan mér í hag. það var semsagt hringt í mig áðan frá pennanum og ég er hér með komin með vinnu þar. jeiiiiiiiiiiiiijjjjjjjjjjjjjjjjjj! frá 9-5 alla virka daga, betri laun heldur en á hinum kúkastaðnum og fullt af fallegu fólki og svo geta vinir mínir komið og heimsækt mig og kannski líka strákurinn sem ég er skotin í en ég held samt að hann viti það ekki eða hvað... og ég er með unaðslegan fiðring í maganum og langar til að hrópa af gleði og kyssa blökkumanninn sem situr við hliðina á mér. ójá ójá, þetta hrópar bara á hátíðarhöld. ég get ekki skrifað meir því að ég er svo hamingjusöm en mér finnst samt eins og ég eigi það ekki skilið en samt á ég það skilið. ó hve glöð ég er... móa sem er nú orðin velgjörðarmaður minn gaf mér líka 3000 krónur áðan og ég þarf ekki að borga henni til baka með kynmökum. bless

mánudagur

stundum í örvæntingu og vonleysi gerum við hluti án þess að hugsa. hluti sem við þyrftum að gera bara er við værum komin fram á ystu brún og okkur fyndist myrkrið hafa heltekið sálina í okkur og svert hjartað. ég lenti í því á föstudaginn, ég náði botninum í fyrsta skipti á ævinni. ég hélt ég hefði upplifað botninn en svo rann þessi stund upp og mér fannst ég yfirbuguð. ég fer ekkert og mun aldrei fara nánar út í þetta en ég óska þess til alls sem ég veit um í heiminum, gott eða illt að þetta þurfi ég aldrei aftur að upplifa. en á meðan á þessu stóð sagði mér einhver sem ég elska að stundum í mesta myrkrinu myndum við sjá glitta í lítið ljós. ég trúði því ekki þá og eiginlega ekki fyrr en í morgun þegar til mín kom manneskja sem hafði áhuga á velferð minni og vildi segja mér að fullt af fólki þætti vænt um mig. stundum mitt í dimmunni gleymum við þeim sem okkur virkilega elska. og þarna gerðist það, einhver kom til mín og faðmaði mig og það var það sem ég hef þurft síðastliðnar vikur. það er hægt að tala og tala um allt sem hefur hent mann í góðra vina spjalli en viðleitni viðmælandans skiptir sköpun og því hef ég komist að. ég hef líka komist að því að ég þarf sjálf margt að bæta í framkomu minni við þá sem mér þykir vænt um. stundum er svo gott þegar einhver faðmar mann. og ég sé ljósið. skrýtið hvað maður fer stundum djúpt niður og heldur að þar muni það enda en svo á örskotsstundu breytist allt. þú finnur vin í einhverjum sem þú þekktir lítið. ég veit að þetta blogg dagsins er ægilega væmið en ég hef orðið fyrir uppljómun. mér finnst að við ættum öll að einbeita okkur að þeim sem standa okkur næst, hætta að reiðast og elska frekar. mér finnst svo ótrúlegt að miðað við þann hrylling sem ég fór í gegnum á föstudag og náði næstum að slá botninn í þetta allt sé ég glitta í ljósið og ég finn gamalkunnan fiðring í maganum. elskum okkur sjálf svo við getum lært að elska aðra.

fimmtudagur

halló.
mikið er ég nú leið og einmana þessa dagana og ég geri lítið annað en að skæla. en það má að sjálfsögðu ekki nefna það við neinn því enginn nennir að hanga með væluskjóðu. nema halldóra sem er alltaf svo góð við mig. ægilega þykir mér nú vænt um hana nema bara að það er óþolandi hvað hún getur endalaust borðað án þass að svo mikið sem að fingurinn á henni fitni en ég þarf ekki annað en að hugsa um elsku langlokurnar og þá stækkar rassinn minn. en ekkert smá sexí rass þó ég segi sjálf frá. í morgun fór ég t.d. í vinnuna og ætlaði að vera hugrökk en þá fór ég bara að skæla fyrir framan alla og fór inn á skrifstofuna með ægilegu yfirkonunni með viskíröddina. hún eins og allir heldur sko að ég sé 17 ára svo að henni fannst ekki merkilegt að ég væri svona niðurbrotin af ástarsorg. eða kannski, hún leyfði mér allavega að fara heim sem var samt neyðarlegt því skrifstofan mín er í endanum á póstsalnum svo ég þurfti að ganga eða hlaupa fram hjá öllum með grátbólgin augu. æji, á manni ekki bara að vera sama? ég þoli ekki að meirihlutanum af mannkyninu og mér finnst asnalegt og skammarlegt að sýna tilfinningar. þess vegna er ég búin að blekkja sjálfan mig og alla seinustu vikur. ég held samt að enginn láti það sig varða. mig langar mest núna til að detta ærlega í það í góðra vina hópi og gleyma öllu.

ég verð að viðurkenna að þó ég hafi nokkurn veginn vitað hvað blogg er var ég ekki alveg viss fyrr en ég las seinasta tölublað tímaritsins veru. að sjálfsögðu er þetta dagbók. ég er nefninlega með kenningu... þeir og við sem handskrifum dagbækur erum alltaf með einhversstaðar í huganum eða undirmeðvitundinni að einhver muni einhvern tímann lesa dagbókina okkar. kannski börnin okkar eða makar og foreldrar ef við deyjum skyndilega. þess vegna mætti segja að þau skrif væru eiginleg dáldið fölsk. falskt er kannski of neikvætt en ég finn ekkert annað sem hugsanlega getur táknað það sem ég er að meina. en með blogginu hreinsast samviskan. við getur verið opinská eða ekki því þetta er jú dagbók og aðrir geta gengið að þessum tölvudagbókum vísum. ég veit reyndar bara um einn mann sem les mína en ég er að hugsa um að fara í augflýsingaherferð og auglýsa bloggið mitt svo ég geti sett grunninn fyrir rithöfundardraumum mínum.

en nú ætla ég heim í bað því að eins og hjá öðrum sem ég þekki er einmitt baðdagur hjá mér í dag. ég vona að það rætist úr þessum degi sem byrjaði svona illa. ég elska ykkur öll eða þá bara þig hjörtur. broskall.

bless.

miðvikudagur

hvenær ætli maður viti að maður sé orðin hamingjusamur og fullnægður? fyrir tveimur dögum var ég fullvissuð um að örlög mín væru ráðin og best væri að ljúka þessu öllu af. ég verð bara að segja að mér finnst dáldið mikið lagt á eina sál að vera í ástarsorg, þunglynd og með fyrirtíðarspennu. en það var semsé fyrirtíðarspennan sem rótaði svona all svakalega upp í mér að mér fannst mér allri lokið. hugsið ykkur hvað er lagt á konur. öryrkjabætur eina viku í mánuði væri það sem maður ætti að fá. ég verð sjaldan eins full af vanlíðan og einsemd nokkrum dögum fyrir túrinn. ég ger viss um að ef sjálfsvíg kvenna yrðu ransökuð kæmust menn að því að þær voru aðeins nokkra daga frá túrnum. ég er ekki að kveinka mér yfir túrnum bara svo það sé á hreinu, mér finnst það barasta ekkert til að kvarta yfir. það þýðir að minnsta kosti að maður er heilbrigður. það eru bara þessir hormónar sem eru versti óvinurinn. eins og tildæmis á sunnudaginn þá hitti ég fyrrverandi ástmann minn og ég er nokk viss um að það hefði ekki tekið eins mikið á hefði ég ekki verið á óverdós af hormónum. en allavega þá finnst mér ekki eðlilegt að manni langi til að fremja sjálfsmorð bara útaf líffræði. og þess vegna brosti ég útað eyrum seinustu nótt þegar rósa frænka kom í bæinn. ojj, þetta er það klobbalegasta sem ég hef á ævinni skrifað.

í gær fór ég á hulk með nokkrum frændum og dóru wonder. ég man ekkert voða mikið því ég var dáldið drukkin og í nýjum skóm sem ég kaufti fyrir geððheilsupeninginn minn. auk þess hef ég ekki borgað leiguna þennan mánuðinn svo ég ætla ekki að svara símanum ef mamma hringir. ef ske kynni að þið rekist á hana segiði henni þá að ég sé flutt til japan að finna sjálfa mig. mér finnst ægilega gaman að vera gella. ég uppgötvaði eiginlega ekki þann part af sjálfri mér fyrr en í hollandi þar sem ég var við nám. mikið er gaman að finnast maður sjálfur ómótstæðilegur. þá skiptir engu hvað aðrir hugsa, maður þarf bara að elska sig sjálfan. eins og við var að búast er ég strax orðin skotin. það er einn af mínum kostum eða ekki að ég á svo ægilega auðvelt með að verða hrifin af fólki. mér finnst gaman að hrífast að því sem aðrir sjá kannski ekki. ég er samt svívirðilega feimin og þori sjaldnast fyrir mitt litla líf að láta eftir mér viðreynslur. þá er maður svo hræddur við höfnun. ég er alltaf hrædd um að einhverjum finnist ég svo feit sérstaklega þegar allir karlkyns vinir manns tala út í eitt um fegurð cameron diaz og fínlegu brjóstin hennar. ég er ekki með fínleg brjóst en sumir kunna að meta alvöru konur! jæja. mér líður reyndar dáldið illa yfir einu en get ekki talað um það hér.

hey! þið sem ég er skotin í, sjáiði mig!!!!!

bless.
spurt og svarað með tinnu.

hvað ertu með í vösunum?
þeir eru alltaf tómir, mér finnst óþægilegt að hafa annað í þeim en hendurnar.

er mjólkurglasið hálftómt eða hálffullt?
það er það sama, spurning um jákvæðni eða neikvæðni held ég.

ef þú værir ekki póstburðarkona, hvað mundir þú þá helst vilja gera?
rithöfundur sem lifir á skrifum sínum og síðar myndi ég fá fálkaorðuna og nóbelsverðlaun fyrir óbilandi skilning á mannkyninu.

hefurðu tárast í bíó?
já, seinast á bowling for columbine

hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á?
pepsi eða kók tónleikar í laugardalshöllinni þegar ég var 12 ára.

hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér?
konan sem leikur jordan í crossing jordan og harold í neighbours.

hver er þinn helsti veikleiki?
líklegast skapið og langlokur.

finndu fimm orð sem lýsa persónuleika þínum vel.
viðkvæm, skapstór, þrjósk, góð og dýravinur.

bítlarnir eða stones?
stones án efa.

hver var síðasta bók sem þú last tvisvar?
láttu ekki smámálin ergja þig. hún er ekki sjálfshjálparbók.

hvaða lag kveikir blossann?
i put a spell on you í flutningi marilyn manson og i can´t hardly wait í flutningi juliette lewis.

hvaða plötu keyptirðu síðast?
tónlistina úr amelie.


hvert er þitt mesta prakkarastrik?
einu sinni þegar ég var held ég fimm ára gáfu ma og pa mér svona stóran og beiskan brjóstsykur. þau voru dáldið áhyggjufull um að ég myndi ekki ráða við brjóstsykurinn og að hann myndi bara hrökkva ofan í mig og sögðu mér þess vegna þegar ég var á leiðinni út með munninn fullan og gott betur að vera nálægt húsinu og dingla um leið ef eitthvað gerðist með brjóstsykurinn. ég fór út og án þess að hugsa mig um tvisvar fannst mér ægilega fyndið og hélt að foreldrar mínir yrðu sammála að dingla og þykjast sem að brjóstsykurinn hefði hrokkið ofan í mig. þau komu hlaupandi sem óð væru mamma skælandi og allt en ég stóð bara skellihlæjandi. ég gerði mér strax grein fyrir því þarna að ég myndi sjaldan geta deilt húmornum með öðrum. að minnsta kost var mö og pa ekki skemmt.

hver er furðulegast matur sem þú hefur borðað?
ég er nú ekkert sérlega víðförul og lítið fyrir að bryðja pöddur og heila og þess vegna nefni ég bara snigla sem reyndar eru pöddur held ég. ég man fyrst þegar ég smakkaði þá fannst mér þeir hið mesta hnossgæti og það var nú bara fyrir fimm árum. en svo eftir því sem ég eldist er mér farið að þykja þetta viðbjóður og nú er svo komið að ég get ekki einu sinni hugsað mér að stinga þessum viðbjóði upp í mig. ég veit ekki hvað hefur gerst. svo er nú hollenskur matur dáldið furðulegur.
ástarljóðið og

síðan þú fórst
hefur ást mín elt annan dag
burt frá mér
og nú veit ég
hvernig heimurinn er án þín
ég get varla séð
hvers virði það er mér
þú vaknar einn daginn
og þá er það of seint
þá veistu að ég er farin
mun minni mitt elta þig að eylífu?
hugsanir mínar snúast um þig
ef á st þín var svo sterk
því er þá óttinn hangandi yfir þér?

sunnudagur

halló.
mér finnst mjög leiðinlegt að geta ekki skrifað á hverjum degi þó ég gæti það nú svosum ef ég bara andskotaðist á bókasafnið. en það er samt eins og flæðið stöðvist innan um allan þennann almenning og allt verður öðruvísi.

núna fyrir einni mínútu sat ég og faðmaði manninn sem ég elska og núna eru augun mín full af tárum og mig langar bara til sofna og ekki að vakna ekki aftur það þýðir samt ekki að ég ætli að drepa mig bara svo það sé á hreinu. hvað á ég að gera. mig verkjar í hjartað og´ég hugsa um ekkert annað. hjálp hjálp hjálp hjálp. ég elska þig ástin mín.

mánudagur

it´s the weekend, it really screwed me up.

halló þá og biðst afsökunar á að hafa ekki skrifað lengi en nú er svo komið að ég hef ekki aðgang að netinu nema á bókasafninu og er að bíða eftir að það verði sett upp hjá mér. nú spyrjið þið ykkur örugglega, hvers vegna er tinna ekki í vinnu en ég veiktist í gær. ég er aftur komin með andskotans svimaköstin og líklegast bara af því að ég var að segja móu um helgina að þau væru hætt að koma. ég taldi mér nefninlega trú um að ef þetta væri vírus í miðeyranu eins og heimilislæknirinn hélt þetta vera, væri bara nóg fyrir mig að þurrka eyrun rosa vel eftir böð með handklæði og eyrnapinnum. og það virtist virka því svimaköstin hafa ekki komið í tvo mánuði eftir að ég byrjaði að hugsa betur um eyrun mín. ég hata sko lækna og þess vegna hef ég enn ekki farið til eyrnasérfræðingsins né hef ég haft efni á því. en ég hélt líka að þetta væri hætt þangað til að ég fór að storka örlögunum með innantómum hreykiyfirlýsingum. helvítis fjandans. allavega þá vaknaði ég svimandi í morgun en ég hélt ég myndi hafa það í vinnuna og þorði auk þess ekki að hringja mig inn veika eftir að hafa verið veik í viku um daginn og nýbyrjuð. þetta var svosum allt í lagi á meðan ég var bara að flokka póstinn en svo þegar ég var byrjuð að bera út þá hófst önnur saga og enn hræðilegri. þannig er nú með þennann svima sem eykur enn frekar trú mína á að þetta sé eyrnatengt er að alltaf ef ég heyri hávær hljóð fæ ég svona mini-aðsvif og það er að gerast aftur og aftur því að heimurinn er jú fullur af hljóðum þangað til að það er alveg að líða yfir mig og ég er farin að svitna ægilega á efrivörinni. síðan ef ég lít til hliðar fæ ég aðsvif, þegar ég stíg fætinum niður á jörðina glymur í hausnum á mér og mig svimar og þar fram eftir götunum. en það skrýtnasta við þetta allt er að þegar ég er með svimann er ég líka alltaf með skrýtið bragð í munninum. ekkert óbragð eða andfýlu heldur meira eins og ekkert bragð. og það skiptir ekki máli þó ég borði, drekki eða tyggi tyggjó eins og óð sem auk þess er líka mjög óþægilegt fyrir svimann þá er ég alltaf með þetta einskisbragð. ég skil það alls ekki. ég er alls ekki að vorkenna mér eða biðja um samúð, bara að deila þessu með ykkur. auðvitað ætti ég bara að hundskast til læknis og aldrei að vita nema að ég panti tíma í dag því að þó þetta sé með eindæmum óþægileg er þetta líka áhyggjuvaldandi. en mitt í hörku minni þarna í sörlaskjólinu að bera út gat ég bara ekki meir því það var alveg að líða yfir mig. svo ég fór heim með fullt af pósti í töskunni og ég þori ekki að hringja í vinnuna. ég geri bara tvöfalt á morgun. annars óska ég eftir sjálfboðaliðum. ég vona bara að þetta verði búið á morgun. ég lifi í stöðugum ótta við að vera rekin úr vinnum eftir að friðrik wassupepli rak mig af kaffihúsinu. hann er helvítis hóra. hann rak mig bara af því að ég sagði að fyrirtækið hans væri að taka mig í rassgatið og hann snéri þessu upp í algjöra vitleysu eins og ég hefði verið að klæmast við hann. æ hvað á ég að gera? mig langar nefninlega ekkert að vinna í póstinum lengur. ég bara get ekki vaknað á morgnana og þó hefur það alltaf verið kennileiti mitt, að vakna snemma á morgnana. mér líður þegar vekjarinn hringir eins og það sé verið að draga neglurnar eða augnhárin af mér. ég held þetta séu lyfin. ég hætti samt að taka þau á fimmtudaginn því ég ætla að fá ný og skamma lækninn minn fyrir að hafa ekki veitt því athygli að ég væri með mjög mikla útlitskomplexa og liði ægilega illa ef ég fitnaði. en að sjálfsögðu er ég undurfögur kona og sá sem hampar mér mun ekki sjá eftir neinu. ég vil vera rithöfundur eða blómálfur.

á föstudag hitti ég hina yndislegu drengi sem fyrir fáum árum ég hékk með upp á hvern einasta dag. mikið var það gaman og mikið eru þeir allir sætir og láta mér líða eins og konu. ég var þó ekkert í neinu sérstöku stuði en fannst samt gaman og yndislegt að hitta þá og ég man eftir því að hlæja. já þeir eru nú meiri öðlingspiltar þessir piltar. ég vildi að þeir væru allir kærastarnir mínir. eða kannski synir mínir frekar. eða nei, þetta er komið út í viðbjóð. ég ætla í það minnsta að vera duglegri í að hafa samband svo að þeir giftist mér kannski allir einhvern daginn eða ekki.

í gær grét ég yfir horfnu ástinni minni og komst að því að ég eyddi allri seinustu viku í að ljúga að sjálfri mér að ég væri hamingjusöm. og ég grét því ég held að hann sé hættur að hugsa um mig. og nú fæ ég tár í augað inni á bókasafni. ég er leiðust yfir því að hafa engan til að faðma. jú að sjalfsögðu hugsið það kannski, ég skal faðma hana tinnu en ég er bara ekki fær um að faðma fólk innilega nema að það standi mér mjög nálægt. og ég er ekki að grínast, ég get ekki einu sinni faðmað mömmu mína og liðið vel með það. skilur einhver hvað ég er að fara? ég get bara faðmað og haldið utan um og leyft manneskju að snerta mig sem að ég er með í sambandi. jesús kristur, ég hljóma eins og misnotaðasta mannvera í heimi og þó hef ég aldrei verið misnotuð. ég verð að kaupa risastóran bangsa. einu sinni gáfu gulli og eva, þáverandi heitkona hans, mér bangsa í afmælisgjöf. mér þótti undurgott að halda utan um hann og okkur fannst það hvorugu vandræðalegt. kannski ég finni hann bara. jæja, nú bara nenni ég þessu ekki. ég ætla heim að leggja mig og ná þessum fjárans svima úr mér. vill einhver koma í heimsókn í kvöld því ég er svo einmana? ekki reyna að faðma mig samt, þá ærist ég og nota kúng fú.
bless.

miðvikudagur

hæ hó og jibbí jei arnar og móa eru komin heim. lítill póstur, er í kaffi og ofboðslega hamingjusöm. ég ætla að halda partý á föstudaginn. danspartý tinnu. ég er komin með risa dansgólf.
bless.

þriðjudagur

jæja, komiði sæl.
í dag var voðalega lítið um póst sem er skemmtilegt því ég var búin klukkan 12 og er því í þessum skrifuðu orðum á launum. á launum við að blogga. eitt þótti mér þó einkennilegt og það var að vinnufélagar mínir virtust ekki sáttir við litla póstinn. á meðan ég flokkaði minn hlustaði ég á þau agnúast yfir því að þetta hlyti að koma í bakið á okkur á morgun og þar fram eftir götunum. mikið fannst mér þetta skrýtið. ég er kannski ekki komin á póstmannabylgjulengdina.

sökum starfsins þarf ég að ganga mikið og mikið finnst mér gaman að ganga. þá brýt ég heilann um framtíðina og stundum fortíðina, legg línurnar fyrir komandi daga í huganum og dáist að heiminum. ég hlusta á fuglana og sjóinn því ég ber út rétt hjá sjónum. stundum er ég skömmuð af skjólstæðingum mínum sem finnst óskiljanlegt að ég með svona mikla ábyrgð skuli stundum bera út í vitlaust hús. einu sinni var ég meira að segja spðurð hvort ég væri þroskaheft af gamalli konu. ég svaraði því til að best væri að hún hefði samband við foreldra mína útaf því máli og gaf henni símann hjá þeim. ég held hún hafi ekki hringt. en stundum hitti ég líka indælis fólk sem hrósar mér fyrir vel unnið starf og þá fæ ég aftur trúna á sjálfri mér. annars er það þetta með labbið. síðan ég byrjaði hef ég prófað allar tegundir af skóm, allt frá stígvélum til sandala. en það bregst ekki að að loknum vinnudegi er ég orðin sár í fótunum og oft með blöðrur á litlu sætu táslunum mínum og hælunum. einu skórnir sem hingað til hafa reynst mér best eru vetrarskórnir mínir en þeir eru bara svo fjandi heitir og ég neita að festa kaup í 15 þúsund króna nike skóm. ég upplifi mig þess vegna oft sem lítinn vesaling. ég ímynda mér að vesalingar séu oft með sára fætur. annars er ég þakklát fyrir allt þetta labb því lyfin mín hafa þær ægilegu aukaverkanir að maður bara fitnar á þeim. enginn vill fitna og ég er þar engin undantekning. og þó ég borði bara eina ristaða brauðsneið á dag fitna ég samt útaf þessum fjandans pillum. ég veit þetta er hégómi en ég vil frekar segja það en engjast í þögninni. ég hugsa mjög mikið um þetta þessa dagana sem er samt skrýtið því líkaminn minn er eins og venus í skel, ég er grísk gyðja. fokk off, manni má líka finnast eitthvað fallegt um sjalfan sig. það eru bara brjóstin á mér sem lýða mest fyrir þetta, ég þarf að hafa þau í hjólbörum sem ég keyri á undan mér því þau eru orðin svo stór. jæja, ég er að ýkja.

mikið er ég þakklát fyrir hið skrifaða orð. ég er ein af þeim sá ægilega erfitt með að tjá mig í mæltu máli en það er einmitt mjög mikilvægt fyrir mig í ljósi liðinna atburða seinustu daga þegar hjartað mitt brotnaði. en í staðinn fyrir að pína mig til að tala kom ég bara hingað og ég er ekki frá því að það hafi gert mér gott því mér líður barasta furðu vel.

annars koma þau hjónaleysurnar arnar & móa heim í kveld/nótt og ég er með fiðrildi í mallanum ég hlakka svo til að hitta þau, sérstaklega móu sem er andleg tvíburasystir mín. og við ætlum svo sannarlega að skemmta okkur um helgina. eru ekki allir með í því? kannski ég haldi teiti í nýmáluðu híbýlum mínum. og svo fékk ég líka stöð 2 í dag. allir í húsinu eru saman í því svo ég þarf bara að borga skít og kanil á mánuði. ég held líka að á næstu dögum verði internetið sett upp hjá okkur og það verður nú aldeilis hressandi. það er yfir litlu að kvarta þessa dagana nema þá helst yfir því hvað það var nú lítill póstur í dag.

halldóra sagði mér frá skondnu í gær. hún er flokkstjóri í unglingavinnunni og krakkarnir hennar voru í hljómsveitarleiknum, þar sem einn segir hljómsveit eða tónlistarmann og hinir keppast við að finna annann eða aðra sem byrjar á stafnum sem hitt nafnið endaði á. nú krakkarnir voru eitthvað að vandræðast með stafinn e og þá kom halldóra og hrópaði glaðlega: eiríkur hauksson! og krakkarnir litu öll á hana stórum augum og spurðu: hver er það? að hugsa sér, þarna fékk ég fyrstu vísbendinguna fyrir utan mánaðarlegu reikningana um að við erum orðin fullorðin, gömul eða eitthvað.

jæja, best að fara að laga aðeins til fyrir húsráðendur. ég elska ykkur. bless.

mánudagur

upp er runninn mánudagur, ákaflega hýr og glaður. í dag var alveg rosalega mikill póstur því fullt af fínum frúm voru að fá freemans listann sem er rosalega þykkur listi, kannski eins og 6 ikea listar. og þegar ég fór útaf pósthúsinu var ég með jafnþungann póst og ég er, ég ætla ekki að segja nákvæma tölu af skiljanlegum ástæðum en það var í kringum 60 kíló. þetta finnst mér ákaflega furðulegt því kollegar mínir í bretlandi, ég veit þetta útaf harry potter geðveikinni, mega ekki bera út meira en 16 kíló. það er fjórum sinnum minna en ég var með í dag og einu sinni var ég meira að segja með 80 kíló. andskoti er þetta skrýtið og auk þess illa borgað líka. og stundum eru líka dreifibréf, rúmfatalagerinn, hagkaup, elko og margt annað. einu sinni hafði ég gaman af þessum pésum þegar ég var námsmaður. þá sat ég yfir þeim með kaffibolla og kannski sígarettu og krossaði við það sem mig langaði í með rauðum penna. en nú hata ég þessa snepla af því að þeir gera mig svarta á höndunum og auk þess þarf ég að bera þá út í hvert eitt og einasta hús þrátt fyrir að enginn póstur sé í húsin svo húsum skiptir þá þarf ég samt að ómaka mig við að bera út í þau þessa viðbjóðslegu auglýsingapésa. ég tek það fram að ég les aldrei aftan á póstkortin sem ég ber út.

í gær grét ég mikið yfir hræðilegum örlögum mínum og reyndi enn og aftur að sannfæra manninn sem ég elska um ágæti mitt sem kærustu hans. það gekk ekki. ég ætla samt ekki að gefast upp. en hann er góður við mig, það má hann eiga. ef þannig má að orðum komast þá er hann eiginlega besta breik öpp sem ég hef lent í, það er næstum ljúft að hætta með honum því hann er svo góður við mig. ég vona að enginn misskilji þetta. ég er ennþá ægilega heartbroken.

ég nenni nú ekki meiru í dag en af gefnu tilefni tilkynni ég gleði mín yfir því að arnar og móa koma heim á morgun. ég vona að þau refsi mér ekki fyrir að hafa hellt kóka kóla á takkaborðið þeirra.

fólk sem mér þykir undurvænt um og munu alltaf eiga stað í hjarta mínu: hjörtur, þorri, gulli, þrándur og þórunn.

bless.

sunnudagur

í morgunn las ég mogann eins og aðra morgna og líka stjörnuspána. hingað til hef ég lesið stjörnuspá okkar beggja en í morgun remdist ég svo mikið við að líta ekki einu sinni á hans sem er beint fyrir ofan mína að ég man ekki einu sinni eitt orð sem stóð í minni. en svo las ég aðra útlenska á veraldarvefnum og þar stóð að þetta væri bara skeið sem að hann væri að ganga í gegnum og ég ætti ekki að taka það nærri mér því það liði hjá. og hana nú! heyrirðu það kjáninn þinn!!!!
það er kominn sunnudagur og vinnuvikan bíður við næsta horn. ég vaknaði hálf 9 af því að ég fór snemma að sofa. horfði bara á vídjó í gær á skrýtna mynd um kynlíf og reyndi að sannfæra manninn sem ég elska með sms-um að hann væri að gera vitleysu. það tókst ekki. við ákváðum samt að ef ég væri enn kona einstök og orðin þrítug og hann ekki hommi myndum við geta barn. það er svosum ágætis markmið í sjálfu sér.

mín bíður bara rólegur dagur að venju. hápunkturinn verður líklega þegar halldóra mín kemur með nýju ferðatölvuna sína að brenna diska. það er nú einn af hinum stórkostulegum kostum húsráðenda þessa húss sem ég er að passa að maðurinn, fyrrverandi mágur minn á óþrjótandi safn af geisladikum. hér finnur maður alla diska og diska sem að hvergi annars staðar er hægt að finna. diska sem að mig hefur lengið langað í og aðrir. ég ætla nú að stelast til að brenna nokkra smelli og búa til ástarsorgar albúm sem ég get hlustað á og horft út um gluggann á meðan. og kannski skælt.
nú svo er ég líklegast að fara í mat til mömmu í kvöld sem er að vorkenna mér í fyrsta skipti á ævi okkar beggja. hún og stjúppabbi minn eru skemmtilegur og skrýtinn dúett. þau fara mikið í ferðalög, nánast hverja helgi hvernig sem viðrar á nýja bílnum sínum sem hægt er að sofa í. kannski ég skelli mér með þeim fyrst ég er orðin einstök.

jeijj! arnar og móa koma heim á þriðjudag og ég hlakka mikið til. mér finnast þau voða skemmtileg og ein af fáum manneskjum sem ég get átt í virkilega vitsmunalegum samræðum við. ég ætla að biðja þau um að ættleiða mig. þá verður samt maðurinn sem ég elska frændi minn og tengdaforeldrarnir fyrrverandi afi minn og amma. það er reyndar viðbjóðslegt. sleppum því þá.

bless.

laugardagur

ég er nú búin að eyða meira en einum og hálfum klukkutíma í að reyna að setja inn svona komment hjá mér en það hefur ekkert gengið því ég kann ekki á tölvur og er orðin gráhærð.
allt líf okkar stjórnast af tónlist. tónlist sem gleður okkur, hryggir, tónlist sem við sönglum með sjálfum okkur eða syngjum með öðrum í hóp. tónlist réði því að nú er ég einstök og nú er ég að hlusta á tónlist sem lætur mig langa til að skæla og barma mér yfir örlögum mínum og hans. ég ætla þó ekki að láta mér það eftir.

ég fór heim til mín áðan til að baða mig því ég fæ innilokunarkennd í baðherbergi húsráðenda íbúðarinnar sem ég er að passa. ég gladdist yfir því að koma heim og hitta yndislegu börnin mín þrjú sem sumir kalla ketti. og ég gladdist yfir því að vera nýbúin að mála íbúðina mína skjannahvíta frá toppi til táar. þá er eins og að byrja upp á nýtt með hreinan og hvítann flöt. ég lagðist líka í breytingar sem mér svo eftir mikið púl líst alls ekkert á. ég ætla að bíða bara róleg þangað til að ég get keypt mér fallega og rauða svefnsófann í ikea. það eru 2 mánuðir þangað til að ég hef efni á því. eftir baðið varð ég hrygg því ég var hryggbrotin og fór í svört föt til að túlka trega minn.

mikið er ég glöð að daginn er aftur byrjað að stytta. ég þoli ekki þessa eylífu birtu þó ég elski hana birtu mína. ég er að hugsa um í ljósi liðinna atburða að flytjast búferlum með börnin til alaska. þar er víst myrkur sex mánuði ársins.

bless.
góðann dag og komiði sæl.
jæja þá, dómurinn sá er fallinn. heitmaður minn seinustu tvö ár og 13 daga komst að því að í framtíð sinni væri ekki staður fyrir mig og ég er því formlega orðin einstök. mér finnst einstakur hljóma mun betur en einhleypur sérstaklega þar sem við búum í samfélagi sem gerir stöðuga kröfu um að vera á föstu og að vera einn sé eitthvað slæmt. mér hefur alltaf liðið vel einni, blessunarlega því ég þekki marga sem bara una sér alls ekki nema í sambandi. að vera sjálfum sér nægur er mikilvægt, þannig komum við í þennann heim og þannig munum við fara. en á þessum tímamótum finn´ég á sjálfri mér breytingu. eitthvað hefur breyst. ég er rólegri, finnst ég taka þessu að stakri prýði þó mér finnist þessi fyrrverandi hundshaus. þetta verður hér með eina fúkyrðið sem ég læt um hann flakka. svilkona mín, sem nú er fyrrverandi svilkona mín sagði mér í gær að hann væri að fjárfesta í slakri framtíð. því er ég hjartanlega sammála. ég var það besta sem að þessi maður mun nokkurn tímann finna og hana nú! ég ætla ekki að vera bitur. velkomin heim tintin!

ég vaknaði að sjálfsögðu eldsnemma í morgun. það er það sem gerist þegar maður þarf að vakna snemma alla virka morgna, hausinn á manni breytist í vekjaraklukku og svo þegar langþráð helgin loksins brestur á og ég sé rúmið og nóg af svefni í hyllingum vakna ég eins og klukka. það var sem sé 7:30. en þá kveikti ég bara á elsku rás 2, lagaði mér kaffi, reykti sígarettur og las moggann. það er gott. ég elska morgnana reyndar og hef aldrei verið mikið gefin fyrir að sofa langt fram eftir.

ég er að passa hérna íbúð og kött sem heitir eftir áleggi. hann er reyndar ekki kominn heim, örugglega á einhverju skralli blessaður. hann er skemmtilegur og misskilinn eins og ég. en íbúðin sem ég er að passa er einmitt íbúð míns fyrrverandi mágs og svilkonu. ég vona að þrátt fyrir það sem undan er á gengið muni þau alltaf hafa pláss fyrir mig í hjarta sínu. þau eru semsagt á hróaskeldu. og þá fór ég að hugsa, hvers vegna hætti ég alltaf með kærustum þegar allir eru í útlöndum? birta besta vinkona mín er líka í útlöndum og þar var hún líka seinast. ég verð að fara að haga þessum breiköppum betur. en bráðum kemur hún heim, reyndar eftir mánuð en tíminn er svo fljótur að líða, sjáiði bara, það er að koma júlí! hún er minn klettur í lífsins ólgusjó og aldrei mun neinn komast með tærnar þar sem hún hefur hælana í manngæsku. það tók mig reyndar nokkurn tíma að átta mig á henni en þegar ég gerði það varð ég fullviss um að hún er engill í konulíki. þið afsakið ef ég er með eindæmum dramatísk í dag en þið skiljið...

skítaflugur. skítaflugur er það nafn sem ég hef gefi einhverri tegund af flugum. þær eru ósköp skrýtnar. litlar og sveima ákaflega furðulega um, eins og þær standi kjurrar í loftinu. þær er hægt að finna mikið í kringum skítugar tuskur og örugglega líka hjá kúk.

þegar ég er að fletta mogganum er ekki hjá því komist að reka augun í minningargreinarnar. ég þekki ekki marga sem deyja og er því ekkert sérstaklega að skoða þær en stundum sé ég andlit sem ég þekki. ég er eins og fíll, ef ég sé manneskju einu sinni man ég eftir henni alltaf. ég lít samt ekki út eins og fíll. og í morgun var ég að labba fram hjá minningargreinunum þegar ég sá konuandlit sem ég þekkti. einhver kona sem ég hef oft séð niðri í bæ en þekkti ekkert. þetta er pínu sorglegt en samt meira skrýtið. skrýtið að deyja og skrýtið að manns 15 mínútna frægð sé mynd af manni í mogganum þegar maður er dáinn.

ég er ekki mikið fyrir sjálfshjálparbækur eins og þær nefnast. ég hef all oft reynt við nokkrar slíkar og þótt þær voða sniðugar en um leið og ég loka þeim aftur gleymi ég allri viskunni sem átti að færa mér hugarró og sálarfrið. en nú hef ég fundið eina alveg frábæra. ég held reyndar að hún sé ekki titluð sjálfshjálparbók sem betur fer eiginlega, mér finnst eitthvað svo húsmóðurlegt við þann titil. hún heitir "láttu ekki smámálin ergja þig" eftir einhvern rosa klárann mann. ég mæli með þessari lesningu við alla. mjög aðgengileg og hún opnar svo sannarleg augun.

nenni ekki meir. veriði bless.

föstudagur

þegar ég var 6 ára sagði ég krökkunum í bekknum mínum að guð væri ekki til. þau fóru flest að gráta og kennarinn skammaði mig og lét mig sitja í sessuhorninu það sem eftir var dags og biðja bænir. ég var ekki djöfladýrkandi sem barn heldur mjög raunsæ og ég hélt satt að segja þá að ég væri að gera góðverk. svona hef ég alltaf verið misskilin.
þegar ég var svo 15 ára ákvað ég að segja vinkonu minni að jólasveinninn væri ekki til. hún fór líka að gráta og hætti að tala við mig.
jæja þá... ég get svo svarið það að ég kann ekkert á tölvur, ég kann ekki einu sinni á þetta blogg. það er bara heppni að ég geti skrifað í þetta. en þó verð ég að tilkynna að það er fyrir tilstuðlan minnar góðu vinkonu hennar halldóru að ég komst svona langt eða svona stutt. það er líka henni að þakka að ég gat tekið þátt í útskriftarsýningunni minni því hún fjármagnaði verkið. að sjálfsögðu verður það greitt að fullu. mig langar til að hafa svona gestabók, hvernig gerir maður það?

en hvað það er nú merkilegt þegar maður er í ástarsorg að maður er ekki fyrr búinn að kveikja á útvarpinu til að lyfta sér aðeins upp að þá fer að hljóma einhver harmsöngur um óendurgoldna ást og eymd. andskotans helvítis. gott að það er bara klukkutími í leiðarljós en það er góður og uppbyggilegur þáttur sem ég mæli með fyrir alla þunglyndissjúklinga. það er líka allt í lagi þó maður missi af nokkrum þáttum í röð því næst þegar maður kveikir er ennþá sama atriði og þú varst í seinast. þar eru líka allir sérlega geðveikir og svífast einskis. ég bara bíð eftir því að fólk fari að hafa kynferðismök við börnin sín. það liggur við...

annars er það að frétta að ég held að ég sé að öllum líkindum orðin kona einsömul. þeir sem vilja giftast mér eða senda samúðar sms er bent á símanúmerið 8971306. ég hef þó ákveðið eins og þið sjáið kannski á þessari lesningu, fyrir utan að ég er að eðlisfari mjög kaldhæðin kona, að láta ekki bugast. þó að þetta hafi verið maðurinn sem ég hélt að yrði maðurinn minn að eylífu, ég varð reyndar fullviss um það þegar ég sá hann fyrst fyrir næstum 8 árum, þá verður maður bara að vera jákvæður. hvað um það þó ég verði ein að eylífu með þúsund köttum. nú fæ ég tár í augun því þetta er í raun ekki sannleikur. ég er ægilega leið. nei, ég neita að vera leið! ég uppskar margt gott eins og arnar og móu sem ég dýrka. þau eru nýju bestu vinir mínir og ég elska þau. nú er líka kjörið tækifæri að fara að heilsa upp á gamla vini. nei, ég er ekki að meina til að fá samúð heldur til að segja þeim að ég gleymdi þeim aldrei. ég er hætt, þetta er að verða of væmið. ef einhver getur kennt mér aðeins á þetta blogg þá væri það vel þegið.
bestu kveðjur.

fimmtudagur

jeijjjjjjjjjjjjjjjjjjj

Summertime......

Ég held ég hafi náð þessu.....
Andskotinn!!!!!!!! Hvar eru islenski stafirnir? Hvað í andskotanum.......... P.S. Þetta skrifaði ég þegar ég kunni ekki neitt. Nú kann ég meira en samt ekki allt....
Vá!!! Það, er ekkert smá erfitt að komast hingað. En nú þegar ég finn þunglyndið sækja að eftir að ég og heitmaður minn slitum samvistum hef ég ákveðið að enginn staður annar en þessi sé betri til að hella úr brostnu hjarta. Annars er þetta nú barasta pása hjá okkur og ég vona heitt og innilega að henni ljúki sem fyrst. Ég hef þó ákveðið að ef þetta er ekki pása, það liggur að mestu leyti í hans höndum því eins og flestir vita er það ég sem er að venju ósköp erfið kona viðureignar og hann verður að gera upp við sig hvort hann vilji berjast við mína drauga, ætla ég að gifta mig hið snarasta. Ég ætla ekki að liggja grátandi uppi í rúmi dag eftir dag eins og eftir tvö seinustu ástarsambönd sem að vísu voru ekki nálægt því eins ánægjuleg og þetta síðasta, heldur taka mig saman í andlitinu og bregða undir mig betri skónum í orðsins fyllstu og finna einhvern sem vill mig, eignast börn og kaupa íbúð í Grafarvoginum og vinna í póstinum þar til ég fer á eftirlaun. Andskotinn hafi það GUÐ, ég skal vinna! Hlæ hlæ og ég er óvenju sæl og dálítið létt af hvítvíni... Bless.